Menntamál - 01.06.1943, Page 31
MENNTAMÁL
21
rauöa litnum saman. Kemur þá fram alveg nýr litur, sem
kallast orange (appelsínulitur). Blöndum nú gulu og bláu
saman. Þá fáum við grœnan lit. Loks blöndum við bláu við
rautt; myndast þá fjólublátt.
Með þessum hætti verður litrófshringurinn til:
Litrófshringurinn gerir okkur kleift að skilgreina gagn-
kvæma afstöðu litanna hvers til annars, og skyldleika
þeirra innbyrðis. Við sjáum m. a., að orange, grænt og
fjólublátt eru samsettir litir, en ekki frumlitir, enda eru
þeir myndaðir við blöndun úr höfuðlitunum þremur.
Við nánari athugun skilst okkur líka, að guli liturinn
ér að eðli og áhrifum skyldari rauða litnum en þeim bláa.
Má því að vissu leyti líta á gult sem lýstan rauðan lit.
Verða þá eftir aðeins tveir frumlitir, rautt og blátt, sem
eru algerar andstæður og með öllu óskyldir. Skipta þeir
litrófshringnum á milli sín í tvö jafnstór áhrifasvæði. Á
öðru þeirra ræður rautt ríkjum, en á hinu hefir blátt frum-
kvæðiö.