Menntamál - 01.06.1943, Blaðsíða 38

Menntamál - 01.06.1943, Blaðsíða 38
28 MENNTAMÁT. vinna í þessa átt svo að um muni. Mannvalið við skólann, starfshættir og skólabragur fyrsta veturinn bendir allt í þessa átt. Helga Sigurðardóttir hefur verið matreiðslukennari við Austurbæjarskólann í Reykjavík síðan hann tók til starfa 1930 og gegnt þvi starfi af frábærum dugnaði. Kennslueld- hús Austurbæjarskóians er sennilega eitt hið fullkomnasta í sinni röð í Evrópu, ef miðað er við barnaskóla. Réð Helga mestu um útbúnað þess og tilhögun. Þá er Helga Sigurðar- dóttir þjóðkunn orðin fyrir bækur sínar um matargerð. Helga hefur til brunns að bera ágæta þekkingu í sérgrein sinni, ódrepandi áhuga og opin augu fyrir íslenzkum sér- háttum. Hinir kennararnir, sem taldir voru, eru kunnir menn og lærðir í kennslugreinum sínum. Þá kennir garð- yrkju við skólann (í sumar) Jóna Jónsdóttir, valinkunn kona, sem um mörg ár hefur starfað við gróðrarstöðina á Akureyri. Á útmánuðum í vetur var fréttamönnum útvarps og blaða boðið að skoða skólann og kynnast starfi hans. Fyrstu kynnin voru þau, að etinn var forkunnargóður og kraft- mikill íslenzkur hádegisverður og voru margir réttir á borðum. Mesta athygli vakti þó nemendavalið, 11 ungar stúlkur víðsvegar af landinu, hver annarri álitlegri, enda úrval úr stórum umsækjendahópi. Húsnæðið, sem skólinn hefur til umráða er ekki mikið, en notað af hagsýni og smekkvísi og áhöldum öllum og útbúnaði komið svo fyrir að til fyrirmyndar má teljast. Fyrir barnafræðsluna getur stofnun Húsmæðrakennara- skólans haft stórmikið gildi. Virðist engin fjarstæða að gera sér vonir um, að á allra næstu árum verði unnt að taka upp matreiðslukennslu í öllum barnaskólum landsins. S. Th.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.