Menntamál - 01.06.1943, Qupperneq 39
MENNTAMÁL
29
Wý lög uin kennaraskólann
Samþykkt á Alþingi 1943
Enda þótt ýmsum hafi fundizt Alþingi það, er sat á rök-
stólum veturinn 1942—43, ekki hafa verið jafn afkasta-
mikið og það sat lengi, þá munu barnakennarar telja setu
þess heilladrjúga fyrir sig og eitt af aðaláhugamálum
þeirra, þ. e. aukna menntun kennara.
Þó að kennurum þyki góð sú launaviðbót, sem Alþingi
veitti þeim í vetur, þá mun þeim hafa þótt miklu meira
koma til hinna nýju laga, sem þingið afgreiddi um kenn-
araskóla íslands. Á síðastliðnum áratug hafa kennarar þrá-
faldlega komið með óskir og tillögur um það, að undirbún-
ingsmenntun þeirra yrði aukin og bætt. Frumvörp hafa
komið fram á Alþingi þessu viðvíkjandi — allmismunandi
— en ekki hlotið fullnaðarafgreiðslu fyrr en nú.
Það var skólastjóri kennaraskólans, sem sámdi hið nýja
frumvarp. Tók hann þar tillit til þekkingar sinnar á
menntun kennara erlendis, reynslu sinnar og kennara
kennaraskólans og áður framkominna óska og tillagna frá
barnakennurum.
Hversu vel þingmönnum hefur þótt frumvarpið undir-
búið', má nokkuð marka af því, hve sammála þeir voru
um afgreiðslu þess svo að segja óbreyttu.
Til þess að kennarar sjái, hvernig máliö var lagt fyrir
þingið og hvers krafist er nú um menntun kennara, fer
frumvarpið, ásamt greinargerð, hér á eftir; ennfremur
breytingar þær, sem gerðar voru á frumvarpinu á Alþingi.
H. El.
Frumvarp til laga um Kennaraskóla íslands
1. gr. Kennaraskóli íslands starfar í fjórum árs-
deildum, eigi skemur en 7 mánuði á ári.
2. gr. Tilgangur skólans er að búa nemendur und-