Menntamál - 01.06.1943, Page 40

Menntamál - 01.06.1943, Page 40
30 MENNTAMÁL ir kennarastarf í barnaskólum. 3. gr. Skólinn er jafnt fyrir konur sem karla. Kennslan veitist ókeypis. 4. gr. í skólanum skal kenna þessar námsgreinar: íslenzku og íslenzkar bókmenntir, eitt Norðurlanda- mál, ensku eða þýzku, stærðfræði, eðlisfræði, efna- fræði, náttúrufræði, heilsufræði, landafræði, sögu og félagsfræði, kristin fræði og siðfræði, uppeldis- fræði,, kennslufræði, kennsluæfingar, teikningu, söng, handavinnu, skrift, íþróttir. Heimilt skal að halda námskeið við skólann í ýms- um framannefndum greinum, ennfremur í garðyrkju- og trjárækt, þegar kostur er. í kennslunni skal hafa sérstakt tillit til þess, að nemendur eigi sjálfir að kenna þessar námsgreinar og verða síðar leiðtogar barna og unglinga. 5. gr. Þessi eru almenn inntökuskilyrði í skólann: 1. Að nemandi, sem tekinn er í fyrsta bekk, sé fullra seytján ára um næstu áramót og ári eldri fyrir hverja aðra ársdeild. Þó getur fræðsíumálastjórn veitt und- anþágu frá þessu ákvæði, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi. 2. Að nemandi hafi engan næman kvilla eða önn- ur lýti, er geri hann óhæfan til kennarastarfa. 3. Að nemandi sé óspilltur að siðferði. 6. gr. Til þess að vera tekinn í fyrstu ársdeild, þarf nemandi að hafa staöizt próf, er sýni, að hann hafi lokið' sem svarar tveggja vetra gagnfræðanámi. Nánari ákvæði um próf þetta setur ráðuneytið með reglugerð. 7. gr. í hverjum bekk skal halda próf í lok skóla- árs, og er próf fjórða bekkjar kennarapróf. Ljúka má námi í einstökum gagnfræðagreinum í öðrum eða þriðja bekk, enda skulu einkunnir í þeim greinum taldar á kennaraprófsskírteini. 8. gr. Um inntöku stúdenta og annarra utanskóla- manna fer eftir ákvæðum í reglugerð, sem ráðuneytið setur. 9. gr. Stofna skal, svo fljótt sem því verður við komið, æfingaskóla í sambandi við kennaraskólann með öllum ársdeildum venjulegra barnaskóla. 10. gr. Við kennaraskólann og æfingaskólann

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.