Menntamál - 01.06.1943, Side 44
34
MENNTAMÁL
annist deildin rannsóknir og leiðbeiningar í þágu
barnafræðslunnar.“
Sú hugmynd, að Kennaraskólinn haldi áfram og taki eðli-
legri þróun og nauðsynlegum umbótum, útilokar vitanlega
ekki framhaldsnám í háskóla. Einmitt þá fyrst, eftir ræki-
legt nám í kennaraskóla, má telja, að kennaraefni séu undir
það búin að stunda uppeldisfræöilegt háskólanám, sem
nefna má því nafni með réttu. Kostur á slíku framhalds-
námi er hér vitanlega æskilegur og nauðsynlegur, enda þótt
ekki sé farið' út í það í frv. þessu, sem miðað er eingöngu
við kennaraskólann.
Kostnaður sá, sem af breytingu þessari leiddi, er fyrst og
fremst fólginn í aukinni launagreiðslu. Sú aukning myndi
samsvara rúmlega einum kennaralaunum.
Um einstaka greinir frv. er óþarfi að fjölyrða.
1. gr. felur í sér aöalbreytinguna, að námstíminn verði
fjórir vetur í stað þriggja nú. Rétt þykir að hafa opna leið
til þess, að lengja megi námstíma á vetri án lagabreyt-
ingar.
2. og 3. gr. þurfa engra skýringa við.
4. gr. er yfirleitt um námsgreinar þær, sem kenna skal í
skólanum. Er þar engum nýjum greinum við bætt það, sem
nú er, en vitanlega myndi kennsla aukast í ýmsum grein-
um við lenginguna, fyrst og fremst í kennsluæfingum, upp-
eldisfræði, íþróttum og íslenzku. Nánari ákvæði um það
yrðu sett í reglugerð.
5. gr. Almennu inntökuskilyrðin eru hin sömu og verið
hafa að öðru leyti en því, að aldursmarkið er lækkaö um
eitt ár, og samsvarar það lengingu námstímans.
6. gr. Á meðan ekki er til samræmt gagnfræðapróf, sem
gera mætti aö inntökuskilyrði í framhaldsskóla yfirleitt,
verður kennaraskólinn að hafa inntökupróf fyrir þá, sem
skólann sækja. Er hér gert ráð fyrir, að tveggja vetra
gagnfræðanám þurfi til að standast það. Eru það svipaðar
kröfur og nú eru gerðar inn í skólann og miðaðar viö það,