Menntamál - 01.06.1943, Side 48

Menntamál - 01.06.1943, Side 48
38 MENNTAMÁL Kennarar í Bandaríkjunum gera níðstafanlr viðvíkfamli menntan eftir stríðið (Frá upplýsingaskrifstofu Bandaríkjanna á íslandi). Leiðtogar i menntastofnunum i Bandarikjunum eru farnir að gera ráðstafanir viðvíkjandi almennri menntun eftir stríðið. Er stuðst við skýrslu Dr. John Sylvester Counts, prófessors, sem kennt hefur við fræga háskóla svo sem Yale, Harvard og Chicago. Sem stendur er hann prófessor við Kennaraskóla Columbia-háskólans í New York. Nefnd frá menntamálasambandi ríkisins kom nýlega á fund í höfuðborg Bandaríkjanna, til þess að ræða áform og hjálp til aðstoðar kennurum, meðan á stríðinu stend- ur og eins að því loknu. Mannkynssagan verður kennd á nýjan hátt. Þýðing þess að vera heimsborgari verður eitt af því mikilvæga á dagsskrá í amerískum menntastofn- unum. Börnin hafa sérstakt námsskeið í grundvallarat- riðum lýðræðis, lærdómsbækur verða yfirgripsmeiri og ætlast er til þess, að kennarar fylgist með því sem ger- ist daglega og almenn tilsögn byrjar jafnvel áður en börn- in fara að ganga á skóla. Dr. Counts, sem aðallega starfar að þessu áformi, hefur verið forseti sambands amerískra kennara síðan 1939. Hann er einnig meðlimur menntamálanefndar ríkisins. Sam- verkamenn hans í því að gera ályktanir og áform viðvíkj- andi menntun eftir stríðið eru þessir: Dr. Alexander J. Stoddard, umsjónarmaður skólanna í Philadelphia. Dr. James Bryant Conant, forseti Harvard Háskólans. Dr. Edmund E. Day, forseti Cornell Háskólans. . Dr. J. E. Edmondson, Deildar-forseti Kennaraskólans við ríkisháskólann í Michigan.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.