Menntamál - 01.06.1943, Qupperneq 49
MENNTAMÁL
39
Dr. Charles B. Glenn, umsiónarmaður skólanna í Birm-
ingham, Alabama.
Dr. Sidney B. Hall, umsjónarmaður skólanna í Virginia
Dr. Frederick M. Hunter, kanslari æðri menntunar sam-
bands Oregon ríkis.
Dr. John K. Norton, við Kennaraskóla Columbia Háskól-
ans.
Miss Agnes Samuelson, framkvæmdarstjóri kennarasam-
bands Iowa ríkisins.
Dr. John A. Saxon, umsjónarmaður skólanna í Pasadena,
California.
Dr. George E. Strayer, við Kennaraskóla Columbia Há-
skólans.
Miss Emily A. Tarbell, alþyðuskólakennari í Rochest-
er, N. Y.
Framtíðaráform.
„Leiðtogar í menntamálum landsins eru fullvissir þess,
að auðsýnilegt sé að nota skólana til þess að búa ungu
kynslóðina undir störf eftir stríðið“, sagði Dr. Conant í við-
tali nýlega. „Við þurfum að leiðbeina kennurum vorum,
svo að þeir fái greiniiegan skilning á því, sem barizt er
fyrir. Þeir verða að vera búnir undir viðreisnina, þegar
friður kemur aftur.
Það er vaxandi meðvitund um bróðerni hvar sem er,
meðal allra manna. Kennararnir eru þess fullvissir, að
við eigum að kenna börnunum, hvað það þýöir að vera
heimsborgari.
Ég held, að fóik sé meira og minna að sannfærast um
það, að veröldin sé nú orðin nokkurs konar smásveit og
að það eigi sér ekki stað, að það sem gerist í einum hluta
heimsins sé alveg óviðkomandi öðrum stöðum hnattar-
ins. Allir menntamálamenn eru samdóma um það, að þörf
sé á að leggja áherzlu á að kynna lýðræði í miklu ríkara
mæli en áður hefur verið gert.“