Menntamál - 01.06.1943, Side 55

Menntamál - 01.06.1943, Side 55
MENNTAMÁL 45 fræði, og hagfræði. Kynoka sér ekki við að tala um mikils- varðandi mál. Vera laus við hleypidóma og kaldhæðni. Kenna gildi lýðræðis, hreinskilnislega og hiklaus. 11. Fela aðallega menntastofnunum að hafa almenn á- hrif á hugarfar og framferði. Menntunin verður að skipa öndvegi og ef hún er fullkomin þá mun framferði og and- legur þroski vaxa af sjálfu sér. Gildi menntanna er eitt af því, sem við verðum að varð- veita, sagði Dr. Counts. Það hefur sýnt sig, að menntuninni hefur fleygt áfram á hættulegum timamótum og ekki er ólíklegt, að sú verði reyndin á aftur. Yfirleitt er hægt að gera öll störf, viðvíkjandi stríðinu mikilsverð á mennta- sviðinu. Menntunin tayrjar nú eiginlega í vöggunni og ég er sann- færður um að ein af þeim miklu breytingum eftir stríð- ið verður sú, að leggja áherzlu á að menntunin verði sem óslitin keðja, hverjum einstakling. Ef okkar stétt vex megin, þá er efalaust að upp úr stríðserfiðleikunum mun rísa menntunarkerfi, sem svarar kröfum þeim, sem frjálsir menn gera. Minning AÖalsteins Sigmundssonar. Fimmtudaginn 29. apríl fór fram viröuleg kveöjuathöfn í Reykjavík, til minningar um Aðalstein Sigmundsson, kennara. Hún hófst með því að starfssystkyni hans, nemendur og vinir komu saman í stofu nr. 10, Austurbæjarskólanum, þar sem Aðalsteinn hafði kennt í 12 ár. Þar flutti Sigurður Thorlacius, skólastjóri, kveðjuræðu, Ríkarður Jóns- son, listamaður, frumort kvæði og sr. Jakob Jónsson bæn. Út úr kennslustofunni báru kistuna nokkrir nemendur, er fóru með Aðalsteini til Færeyja 1933, síðan tók stjórn í. S. í. við, en síðasta spölinn frá skólanum aö líkvagninum báru nokkrir samkennarar Að- alsteins úr Austurbæjarskóla. Ýmsir forystumenn Ungmennafélags íslands báru kistuna í kirkju, en fulltrúar Sambands íslenzkra barnakennara úr kirkju. Frá líkvagni og að skipshlið báru kistuna fyrst félagar Aðalsteins úr Samvinnu-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.