Menntamál - 01.02.1944, Síða 7

Menntamál - 01.02.1944, Síða 7
MENNTAMÁL 25 hvort tveggja. Tilraun með handavinnunámskeið í sam- bandi við sundkennslu var gerð í Reykholti í fyrra og gafst vel.“ ,,Já, ég sá minnst á það í Menntamálum í fyrra. Býstu við, að slíkt námskeið verði haldið þar aftur næsta yor, eða kannske víðar?“ ,,Ég geri fastlega ráð fyrir, að það verði haldið þar aftur. Ég hef skrifað sýslunefnd Árnessýslu um þessi efni, og hefur hún lagt fram nokkurt fé, er verja á til slíkra námskeiða í vor.“ „Er það ekki heldur sjaldgæft, að sýslunefndir skipti sér af fræðslumálunum?“ „Þær hafa gert það nokkuð sums staðar. Ég tel, að með þessu, sem ég var að geta um, sé spor stigið í þá átt, að þær geri það frekar en áður, og er það vel farið. Sýslumenn þeir og sýslunefndarmenn, sem ég hef talað við um meiri afskipti sýslnanna af kennslumálum, hafa tekið því vel og sýnt áhuga og skilning á alþýðufræðsl- unni.“ „Viltu geta um fleira, er lýsi áhuga manna á skóla- málunum?" „Skólabílana, en lofað hef ég þér sérstöku greinarkorni um þá, Ólafur. En skylt er að minnast hér á, að skipu- lagsbreytingar hafa sums staðar verið gerðar á skólum til þess að auka starfsemi þeirra, fastir skólar teknir upp í stað farskóla, þótt þeir verði að starfa í leiguhúsnæði, þangað til kostur verður á að byggja skólahús. Þannig er um heimavistarskólana í Holtahreppi, Landsveit og Kjós, að þeir starfa í leiguhúsnæði.“ „Þetta allt þykja mér góðar fréttir,“ segi ég. „En svo ég víki að öðru: Mig langar til að heyra eitthvað um fundina, sem þú hefur haldið með kennurum. Ég hef að vísu heyrt nokkuð frá þeim sagt, bæði i útvarpi og blöð- um. Hafa þeir verið margir og tekið til kennara af stóru svæði?“

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.