Menntamál - 01.02.1944, Page 18
36
MENNTAMÁL
gegnt æ síðan, og var hann nú talinn einn af merkustu
skólamönnum. Hafði ég oft heyrt á hann minnst í há-
skólanum, og í einu dagblaði borgarinnar birtust að stað-
aldri eftir hann þættir um uppeldismál og ýmis konar
ráðleggingar í þeim efnum. — Lék mér því mikil forvitni
á að sjá skóla hans, og sama máli var að gegna um
Steingrím, því að hann hafði aldrei séð dr. Patri sem
starfandi skólamann, en hafði aftur á móti lengi haft
mætur á honum sem fræðimanni í greininni.
Ég sagði Steingrími frá því, sem ég hafði um skólann
heyrt, en sumra upplýsinganna hafði ég beinlínis aflað
mér til undirbúnings heimsókninni. Skólinn er fyrir ungl-
inga á aldrinum 12—14 ára. Skólaskylda í New York
ríki er til 18 ára aldurs, og svo er í flestum ríkjum Banda-
ríkjanna. Er framhaldsskólanum skipt í tvennt, þannig,
að í yngri deildinni eru unglingar frá 12—14 ára, en í
eldri deildinni eru 14 ára unglingar og eldri. — Skóli
Angelo Patri er því eins konar yngri deild framhalds-
skólans, þó að nokkrir nemendur séu þar eldri en 14 ára.
Hann er ríkisskóli og undir yfirstjórn fræðslumálastjórn-
arinnar í New York, en þó er honum ekki þröngur stakk-
ur skorinn með námsskrám og fyrir fram gerðum áætl-
unum um námið. Kemur þetta til af tvennu: Skólum í
New York ríki eru yfirleitt gefnar frjálsar hendur í starfs-
háttum og vali verkefna, ef þeir uppfylla vissar lágmarks-
kröfur, og Angelo Patri er slíkt nafn, að það er talin
fullkomin trygging fyrir skólastarfi, sem ekki þurfi að
hlutast til um. Skólinn er svo í sveit settur, að umhverfis
hann býr að langmestu leyti fólk með rýrar tekjur, eða
að minnsta kosti ekki meiri en í meðallagi. Eru flestir
íbúarnir af ítölskum ættum, og dr. Patri er einnig af því
bergi brotinn. Kom hann til Ameríku fjögurra ára gamall.
Ekki hefur skólinn meira fé til umráða en aðrir opinberir
skólar, nema hvað yfirburðir skólastjórans og snillibragð
nemendanna hafa oft dregið að skólanum drjúgan skild-