Menntamál - 01.02.1944, Side 28
46
MENNTAMÁL
Fréttir og félagsmál
Sigurður ÞorvalcLsson
kennari í Vindhælishreppi varð sextugur iyrir skömrnu (í. 23. jan.
1884). Hann tók kennarapróf úr kennaradeildinni í Flensborg 1905,
sótti kennaranámskeið I Askov 1907—08 og var í Statens Lærerhöj-
skole í Kaupmannahöfn 1908—09. Hann var kennari við Hvítárbakka-
skólann 1905—07, en eftir að hann kom frá námi erlendis hefur
hann stundað kennslu barna og unglinga á ýmsum stöðum, m. a. á
Isafirði 1910—16.
Árni Björnsson
kennari í Arnarneshreppi varð fimmtugur 24. jan. s.l. Hann lauk
prófi úr Hólaskóla 1920, varð kennari í Arnarneslireppi í Eyjafjarðar-
sýslu 1921 og hefur verið það síðan.
Frá sambandsstjórn.
Stjórn Sambands íslenzkra barnakennara samþykkti eftirfarandi
ályktun með 5 atkvæðum gegn 2 á fundi sínum g. þ. m.:
„í síðara hefti Menntamála 1943 birti þáverandi ritstjóri, Gunnar
M. Magnúss, í fullkomnu heimildarleysi (smbr. lög S.Í.B.) og á vill-
andi liátt tillögu, er fram kom á stjórnarfundi S.Í.B. varðandi afstöðu
Menntamála til sjálfstæðismálsins, en var vísað frá með dagskrár-
tillögu.
Stjórn S.I.B. samþykkir því að láta birta ályktun þessa ásamt dag-
skrártillögunni í næsta hefti Menntamála. Þá fyrst „geta lesendur
dregið sínar ályktanir" út af afstöðu sambandsstjórnarinnar til sjálf-
stæðismálsins."
Dagskrártillagan er svohljóðandi:
„Stjórn S.Í.B. er samþykk því áliti uppeldismálaþingsins s.l. vor,
að stofna beri lýðveldi á Islandi sem fyrst. Hins vegar telur stjórnin
rétt að lialda Menntamálum utan við þau deilumál, sem ekki snerta
stéttarmál kennara eða uppeldis- og kennslumál, og tekur því fyrir
næsta mál á dagskrá."
Nýtt barnaskólahús
var vígt í Njarðvíkum í Gullbringusýslu 19. desember s.l. Húsið er
sérstaklega smekklegt og vandað og vel að húsgögnum búið. Vígslu-
athöfnin var fjölsótt og margar ræður fluttar. Bjarni M. Jónsson