Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 8

Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 8
78 MENNTAMAL Jón Pálsson fyrrverandi bankaféhirðir Hann andaðist að heimili sínu, Laufásvegi 59, hinn 22. jan. síðastliðinn, rúm- lega áttræður. Jón Pálsson var fæddur að Syðra-Seli í Stokkseyr- arhreppi 3. ágúst 1865 og ólst þar upp. Árið 1902 fluttist hann til Reykjavík- ur og bjó þar síðan. Hann /ar aðalféhirðir Landsbank- ans 1912—’28. Jón hneigðist að tónlist úns og bræður hans, Bjarni, Jísli og ísólfur, og um 40 ára skeið kenndi hann á harmonium (orgel). Munu þessir nemendur hans skipta nokkrum hundruðum. Hann var kirkjuorganleikari frá 1887—1926, fyrst á Stokks- eyri og Eyrarbakka og síðar við fríkirkjuna í Reykjavík. Jón var barnakennari á Stokkseyri 1887—89 og á Eyrar- bakka 1889—1902. Hann var ötull og góður kennari, eink- um var skriftar- og reikningskennslu hans við brugðið. Einnig hélt hann skóla fyrir sjómenn árin 1890—1902- Jón heitinn beitti sér mjög fyrir mannúðarmálum, eink- um í þágu barna og sjúkra manna. Hann var formaður barnaverndarnefndar Reykjavíkur frá 1932 til dauðadags. Hann átti drýgstan þátt í stofnun sumardvalarheimilis Qddfellowa að Silungapolli og var formaður og fram-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.