Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 20

Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 20
90 MENNTAMAL en áður var enginn byggð þar í Hvamminum. Á þeim stað hefur Stefán búið síðan og jafnframt stundað barna- kennslu með miklum ágætum. Litli-Hvammur má nefnast miðstöð félagslífs þar í sveit, og í 43 ár hefur Stefán verið lífið og sálin í margvíslegum félagssamtökum, svo sem búnaðarfélagi, bindindisfélagi og ungmennafélagi. Hann talar af sjálfs sín reynslu, þegar hann segir í Minn- ingarriti U. M. F. íslands: „Það er gott að vinna sig heitan og þreyttan að framgangi nauðsynjamála og njóta vinnugleði og hvíldar í félagi- Og ekk- ert borgar sig betur.“ Klemens Jónsson kenn- ari á Vestri-Skógtjörn á Álftanesi er fæddur 1. apríl 1876 að Jórvík í Álftaveri. Hann tók kenn- arapróf úr kennaradeild- inni í Flensborg vorið 1903 og stundaði síðan framhaldsnám í Kaup- Klemens Jónsson. mannahöfn. Kennari var hann í Meðallandi veturna 1903 —1905, en í Bessastaðahreppi á Álftanesi síðan haustið 1905. Jafnframt hefur hann gegnt fjölmörgum trúnaðar- störfum fyrir sveitarfélag sitt og jafnan þótt hinn traust- asti starfsmaður. Stéttarmál kennara lét hann um skeið allmjög til sín taka og reyndist þar eins og annars stað- ar athugull og þéttur fyrir. Hann átti sæti í stjórn Sam- bands íslenzkra barnakennara samfleytt í átta ár, 1922 —1930, og var alla jafna drjúgur í fylgi við þau mál, er hann hugði að koma mættu skólastarfseminni og kenn- urum að gagni.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.