Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 32

Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 32
102 MENNTAMÁL 3. Leikskóli: Ársstarfsemi alla virka daga, með síimu úrtöllum og dagheimilið, auk jólafrísins. Starfsdagar 274 (291). Dvalar- dagar alls 6193 (9558). Barnafjöldi alls um 100 (125). 3. Vistarheimili: Ársstarfsemi, starfsdagar 365 (366). Dvalardag- ar alls 5663 (6330). Barnafjöldi alls 35 (68). 4. Vöggustofa: Ársstarfsemi, starfsdagar 365 (366). Dvalardagar alls 5946 (8013). Barnafjöldi alls 42 (50). Starfsdagar þessara stofnana urðu ])ví samlals 2209 (2274). Á heimili félagsins komu alls 538 börn (618), aldur o—11 ára. Dvalardagar barnanna urðu alls 58266 (62047). Þar af tilheyrðu leik- skólanum 15839 (17473) dvalardagar, án fæðis. Dvalardagar barnanna verða færri nti en árið áður, m. a. vegna þess, að 12 daga hlé varð á dagheimilis- og leikskólastarfseminni í júlí, vegna sumarfría. Og svo einnig vegna þess, að nauðsyn þótti, vegna húsrýmis, að fækka rúm- um á vistarheimilunum. Reksturskostnaður heimilanna varð alls um 560 þús. kr. (450 þús.). Meðlög og skólagjöld urðu samtals um 350 þús. kr. (293 þús.). Styrkur frá ríkissjóði var 70 þús. kr. (70 þús.). Styrkur frá bæjarsjóði Reykjavíkur var 180 þús. kr. (140 þús.). Barnaheimilunum er hvorki reiknuð húsaleiga né kostnaður við búsáhöld og leikföng." Á sumardaginn fyrsta efndi Sumargjöf til mikilla hátíðahalda í Reykjavík að venju. Einnig gaf félagið þá út ársritið Sólskin og Barnadagsblaðið. Isak Jónsson skólastjóri er formaður og framkvæmdastjóri Sumar- gjafar, eins og að undanförnu. Kennarapróf fyrir 50 árum. Vorið 1896 sóttu engir kennaranámskeiðið í Flensborgarskólanum, og tóku þess vegna engir kennarapróf það vor. |. * I : ; r " Kennarapróf fyrir 40 árum. Vorið 1906 luku eftirtaldir menn prófi úr kennaradeild Flens- borgarskólans: 1. Aðalheiður R. Jónsdóttir, húsfreyja að Hrísum í Víðidal, d. 1931. 2. Anna Rósa Þorvaldsdóttir, lyrr forstöðukona Kvennaskólans á Blönduósi. 3. Björn Guðmundsson, fyrr skólastjóri á Núpi. 4. Grímur Grímsson, fyrr skólastjóri í Ólafsfirði. 5. Jóhanna Jensdóttir, húsfreyja í Stykkishólmi, d. 1923. 6. Jóhannes Þorsteinsson, kennari á ísafirði, d. 7. Jón Jónsson frá Flatey, kennari í Reykjavík.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.