Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 31

Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL 101 Fréttir og félagsmál Arnfinnur Jónsson kennari í Reykjavík varð fimmtugur fyrir skömmu (fæddur 7. maí 1896). I-Iann tók stúdentspróf 1920 og las síðan uppeldisfræði og heimspeki við háskóla í Leipzig 1921—23. Skólastjóri á Eskifirði var hann 1923—1939, en við Austurbæjarskólann í Reykjavík hefur hann kennt síðan haustið 1939. Valdimar Ossurarson skólastjóri í Sandgerði varð fimmtugur fyrir skömmu (fæddur 1. maí 1896). Hann tók kennarapróf 1921, fyrir 25 árum, var kennari í Rauðasandslirepp í Barðastrandarsýslu 1921—25, við héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði 1926—30 og í Sandgerði síðan 1930. Barnavinafélagið Sumargjöf í Reykjavík hefur birt skýrslu um starfsemi sina 1945 í Barna- dagsblaðinu. Þar segir svo meðal annars (í svigum eru tölur frá ár- inu 1944 til samanburðar); „Félagið starfrækti barnaheimili allt árið, eða 365 daga (366). Starfsemin var í 7 deildum: 1. Grænaborg var sumarskáli fyrir Suðurborg, starfsdagar þar því taldir með Suðurborg. //. Vesturborg: Vistarheimili, ársstarfsemi, stárfsdagar 365 (366). Dvalardagar alls 6673 (6557). Barnafjöldi alls 46 (43). III. Tjarnarborg: 1. Dagheimili: Arsstarfsemi alls virka daga, en 12 daga hlé í júní vegna sumarfria, og vikulokun vegna skarlatsóttar. Starfsdagar 283 (301). Dvalardagar alls 15981 (14942). Barna- fjöldi alls 123 (116). 2. Leikskóli: Starfandi á sama tíma og dagheimilið, en var lokað milli jóla og nýjárs. Starfsdagar 278 (301). Dvalardagar aBs 9646 (7915). Barnafjöldi alls 106 (106). IV. Suðurborg: 1. Dagheimili: Ársstarfsemi alla virka daga, en 12 daga hlé í júlímánuði vegna sumarfría og nokkra daga vegna veikinda. Starfsdagar 279 (296). Dvalardagar alls 8164 (8723). Barna- fjöldi alls 86 (110).'

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.