Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 22
92
MENNTAMAL
Björn Jakobsson skólastjóri Iþróttaskólans á Laugar-
vatni er fæddur að Narfastöðum í Reykjadal í Suður-
Þingeyjarsýslu 13. apríl 1886. Hann tók gagnfræðapróf
á Akureyri og stundaði síðan nám við Askov-skóla í Dan-
mörku. Hann tók próf í fimleikum og heilsufræði við
Statens Lærehöjskole í Kaupmannahöín árið 1908. Síðan
var hann íþróttakennari við
Kennaraskólann og Mennta-
skólann í Reykjavík og
starfaði jafnframt hjá
Iþróttafélagi Reykjavíkur.
Varð kvennaflokkur L R.
frægur bæði innan lands og
utan undir stjórn hans. Þeg-
ar íþróttaskólinn á Laugar-
vatni var stofnaður 1932,
varð Björn skólastjóri hans
og er það enn. Áhriíanna af
starfsemi Björns Jakobs-
sonar hefur því gætt víða
um land og á eftir að gæta
enn meir, enda er Björn
hinn mesti kunnáttumaður
Bjöm Jakobsson. [ sinni grein og um margt
brautryðjandi í þessum málum, en einmitt í byrjun ríður
mest á, að vel sé á málum haldið, svo sem Björn hefur gert.
Þorsteinn G. Sigur&sson kennari við Miðbæjarskólann
í Reykjavík er fæddur að Völlum í Saurbæjarhreppi í
Eyjafirði 14. maí 1886. Hann tók gagnfræðapróf á Akur-
eyri 1906 og gerðist þá þegar farkennari í Saurbæjar-
hrepp, en við heimiliskennslu hafði hann starfað einn vet-
ur áður en hann fór í skólann. I Kennaraskólann fór hann
1911 og tók próf þaðan vorið eftir (1912). Næsta vetur
var hann kennari við alþýðuskólann á Hvítárbakka og
síðan einn vetur við smábarnakennslu í Eyjafirði. Kenn-