Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 9

Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 9
MENNTAMÁL 79 kvæmdastjóri þess alla tíð. Jón var hvatamaður að stofn- un Sjúkrasamlags Reykjavíkur 1909 og var formaður þess þar til 1935, að tryggingarlöggjöfin kom til fram- kvæmda. Jón Pálsson gekk í Góðtemplararegluna á unga aldri og var þar æ síðan. Gegndi hann ýmsum mikilvægum störf- um, m. a. fyrir Stórstúkuna. Árið 1939 gáfu þau hjónin 20 þús. kr. til stofnunar drykkjumannahælis. Reykvíkingar og fleiri kannast við áhuga og elju Jóns Pálssonar á dýraverndarmálum. Hann var sannnefnd- ur dýravinur eigi síður en barnavinur. Hér hefur aðeins verið drepið á hið helzta, sem Jón heitinn lét til sín taka. Hér er eigi rúm til þess að fara út í það nánar, hversu hugðarefni hans hrifu hug hans allan, en þó skal það sagt, að gott væri til þess að vita, að sem flestir gætu beitt sér af jafnmikilli alúð að því að hjálpa þeim, sem hjálpa þarf, og Jón gerði á sviði mannúðar- málanna. Jón Pálsson hefur safnað miklum fróðleik frá átthög- um sínum. Er nú hafin útgáfa á nokkru af því, sem hann hefur ritað. Fyrsta hefti þess safns — Austantórur I — kom út á síðasta ári. Einnig hefur Jón safnað skrýtlum o. fl., sem til gagns og skemmtunar má verða. Árið 1895 giftist Jón Önnu S. Adólfsdóttur, sem ávallt hefur verið og er hvers manns hugljúfi. Hinir mörgu nemendur Jóns Pálssonar minnast hans með hlýhug og þakklæti fyrir kennslu og liðsinni í hví- vetna. Aðrir, sem notið hafa góðs af störfum hans eða liðsinnis, gleyma honum ekki. Ef dýrin mættu tala eða gefa út þingsályktanir, þá mundu þau einnig senda honum þakkarkveðju sína. Helgi Elíasson.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.