Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 21
MENNTAMAL
91
Egill Þórláksson kennari á Akureyri er fæddur að
Þóroddsstað í Köldukinn í Suður-Þingeyjarsýslu 6. marz
1886. Hann lauk prófi við Kennaraskólann í Reykjavík
vorið 1910 og var síðan kennari í Bái’ðardal 1910—
1916. Hann var heimiliskennari á Akureyri 1916—1919
og kennari við barnaskólann í Húsavík 1919—1939, en
þá varð hann kennari við
Barnaskóla Akureyrar og
hefur verið það síðan.
Egill hefur ritað þrjár
bækur til lestrarkennslu:
Stafrófskver og Bernsku-
mál I—II. Hefði hann vel
mátt rita méira fyrir
yngstu lesendurna, því að
hann fer nærri um, hvað
þeim hentar, enda er mað-
urinn í röð beztu kenn-
ara, ekki sízt fyrir lítil
börn, því að hann.er hverj-
um manni hlýlegri og um-
hyggj usamari og sýnir
fágæta alúð og natni við
starf sitt. Hannes J.
Magnússon kennari á
Akureyri segir um hann í Heimili og skóli: ,,Honum þykir
vænt um allt, sem lifir, alla smælingja, og þó allra vænst
um börnin. ... Og ef honum þykir vænna um nokkra
eina tegund barna en aðra, þá myndu það helzt vera litlu,
vangefnu og vanþroska börnin, því að . . . hann veit, að
þau þurfa helzt á nærgætni og ástúð að halda.“
Egill er íslenzkumaður góður og svo laginn til skáld-
skapar, að hann getur mælt í rímuðu máli eigi seinna
en aðrir í órímuðu, en jafnframt eru sumar lausavísur
hans meðal hins snjallasta, sem til er í þeirri grein.