Menntamál - 01.03.1947, Side 7
MENNTAMÁL
XX., 1.—2.
JAN.—MARZ
1947.
HARALD SCHJELDERUP:
Val nemenda til framhaldsnáms
Grein þessi er eftir Harald Schjelderup prófessor í sálarfræði við
Óslóarliáskóla. Fjallar hún um málefni, sem mjög er aðkallandi í öll-
um menningarlöndum. Ætti hún að geta skýrt fyrir mönnum þann
mikla vanda, sem liér er á ferðum, og hversu fádæma óskynsamlega
við, eins og flestar aðrar þjóðir, bregðumst við honum. Eru þau mál,
sem liér eru rædd svo almenns eðlis, að meginefni greinarinnar á
jafnt erindi til okkar sem Norðmanna.
I.
Fræðslukerfi menningarlandanna hefur stundum verið
líkt við pýramída. Neðsta lagið samsvarar barnaskólun-
um, síðan er hlaðið lagi ofan á lag, jafnframt því sem
þau dragast saman. Fáeinir komast alla leiðina upp á
toppinn og ná hinni æðstu viðurkenningu háskólans, dokt-
orsnafnbótinni.
Þjóðfélagið varðar það auðvitað geysimiklu, með hverj-
um hætti þetta úrval gerist. Það ríður á miklu, að þeir,
sem hljóta æðri menntun, að ekki sé talað um hina æðstu,
séu í raun og sannleika til þess hæfir, að það séu þeir,
sem hafa bezt skilyrði til að hagnýta sér hana og séu
færir um að skipa æðstu stöður þjóðfélagsins.
Mér er sterkur grunur á því, að við höfum fram að
þessu leyst þennan vanda að ýmsu leyti ákaflega illa af
höndum. Af skiljanlegum ástæðum er mér eðlilegast að
líta á þessi mál frá sjónarhól háskólans og annarra æðri
skóla. Eins og menn vita, eru hömlur á því að komast í
hina æðri skóla (högskolene) sem og að lækna- og lyfja-
deild háskólans. Nú sem stendur verða stúdentar að hafa