Menntamál - 01.03.1947, Page 11

Menntamál - 01.03.1947, Page 11
MENNTAMÁL 5 benda til, að um 80% mismunarins á greind einstaklinga eigi ráetur að rekja til erfða, en 20% til umhverfis. Sálfræðingar eru þó ekki algjörlega á einu máli um stöðugleika greindarvísitölunnar. Það mál hefur einmitt verið til rækilegrar athugunar og umræðu á nýjan leik hin síðari ár. Það virðast- koma fyrir allverulegar breyt- ingar á greindarvísitölu barna innan sex ára aldurs. En það getur verið, að mælingunum sé ekki eins að treysta, er svo ung börn eiga í hlut. En að því er tekur til barna á skólaaldri, sem eiga við sæmilega eðlileg skilyrði að búa, þarf ekki að gera ráð fyrir breytingum, sem neinu nemi, vegna áhrifa umhverfisins. í því efni, er hér um ræðir, verðum við að gera ráð fyrir svo til stöðugri greindar- vísitölu. Miklu varðar það, hvernig greindin skiptist milli manna. Eru t. d. jafnmargir menn treggáfaðir, meðalgreindir og flugskarpir, jafnmargir með GV 50, 100 og 150? Þessu er annan veg farið. Það eru margir meðalgreindir, en þeir verða færri og færri, eftir því sem neðar eða ofar dregur. Flestir eiginleikar manna, bæði líkamlegir og andlegir, skiptast milli þeirra eftir sama lögmáli. Flestir hafa því greindarvísitölu nálægt 100. Það eru aðeins örfáir, sem hafa mjög lága eða mjög háa GV. Áður var talið, að 60% manna hefðu GV milli 90—110. Fyrir neðan 70 var talið 1% og jafnmargt fyrir ofan 130. Eftir nýjustu rannsóknum Termans að dæma, er skipt- ingin dálítið á annan veg. Af lögmálinu um hinn tiltölulega mikla stöðugleika greindarvísitölunnar verða dregnar ályktanir, sem skipta miklu máli um það, fyrir hverri menntun unglingunum skuli séð. Sá, sem reynist hafa lága greindarvísitölu, getur ekki komizt langt á menntabrautinni, hversu mikið sem hann leggur að sér, og hversu góð skilyrði sem honum eru búin, Greindarvísitala hans getur hækkað svolítið, en

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.