Menntamál - 01.03.1947, Page 15

Menntamál - 01.03.1947, Page 15
MENNTAMÁL 9 skólaárs færi fram aðgreining og þeir, sem dæmdust til þess hæfir, færu þá í hina æðri skóla, sem byggju þá undir nám í háskóla eða sambærilegum stofnunum. Hinum væri síðan séð fyrir verklegu eða listrænu námi. Skynsamlegast væri, að af barnaskólunum tækju við nokkurra ára skólar, sem veittu almenna menntun, og síðan sérstakir atvinnu- skólar og jafnvel listaháskólar. Það væri algjör misskilningur að telja þessa skipan ólýðræðislega. Mergurinn málsins er sá, að þjóðfélagsstaða og efnahagur foreldra ráði ekki um það, hverjir veljist til náms í æðri menntastofnanir. Líffræðilegum lögmál- um um skiptingu hæfileikanna meðal mannanna barna getum við ekki breytt. Skólakerfi, sem reist er á bjargi hins sanna lýðræðis, getur ekki haft það markmið að veita öllum sams konar uppfræðslu eins lengi og auðið er, heldur að allir eigi jafnan rétt og þess kost að hljóta þá menntun, sem hæfir gáfnafari þeirra og hugur þeirra stendur til. Ef að því ráði yrði horfið að láta hæfileikana skera úr um það, hverjir yrðu valdir til æðri mennta, mundi það hafa róttæka breytingu í för með sér á þeim stéttamis- mun, sem fyrir er, og stefna í átt til aukins lýðræðis. Ef almennum greindarprófunum verður komið á í skól- um og þær verða látnar hafa úrslitavald um val nemenda til framhaldsnáms, þarf að gæta þess vandlega að koma í veg fyrir andlega óheill, sem mundi birtast í vanmeta- kennd hjá þeim, er skemmra kæmust á námsbrautinni. Það yrði þegar í upphafi að gera það eins ljóst fyrir mönnum og kostur er, að ekki sé verið að draga nemendur í dilka eftir verðleikum, heldur sé verið að komast eftir því, hvers konar nám þeim hentar bezt, fræðilegt eða verklegt og listrænt. í þessu sambandi er það næsta mikils- vert, að atvinnuskólarnir séu vel úr garði gerðir og þeirra hlutur gerður virðulegri. Sá hæfileiki, sem prófaður er með greindarprófunum, er um fram allt hæfnin til fræði-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.