Menntamál - 01.03.1947, Page 16

Menntamál - 01.03.1947, Page 16
10 MENNTAMÁL legs náms. En það eru einnig til aðrir hæfileikar, t. d. hæfi- leikar í verklegum og vélrænum efnum, músíkgáfa o. s. frv., sem eru tiltölulega lítið háðir fræðilegum gáfum. Ef til vill væri heppilegast að kalla umrædd próf ekki greindarpróf. Það mætti ofur einfaldlega kalla þau flokk- unarpróf. Hitt er annað mál, að þær gáfur, sem koma fram í hárri greindarvísitölu, eru mjög mikilvægar, því að hin hærri stig þeirra eru svo sjaldgæf, en jafnframt nauðsynleg til vaxtar og viðgangs samfélaginu. Það eru aðeins einn eða tveir af hundraði, sem hafa greindarvísitölu hærri en 130. Það er því full ástæða til þess að sjá þessu greinda fólki fyrir eins góðum þroska- skilyrðum og kostur er. Það er ekki gert í skólum lands- ins nú. Skylda þjóðfélagsins að auðsýna gáfaðasta hluta æsku- lýðsins sérstaka umönnun styðst einnig við önnur mikils- verð rök. Greinda fólkið giftist yfirleitt seinna og eignast færri börn en það fólk, sem miður er gefið. Það hafa verið gerðar margar athuganir á systkinafjölda vel gef- inna og miður gefinna barna, og niðurstöðurnar hafa alltaf verið hinar sömu, að vel gefnu börnin hafa átt miklu færri systkin. Ef það er rétt, að greindin sé að verulegu leyti komin undir erfðum, þá eru framtíðarhorf- urnar í þessum efnum annað en glæsilegar. Til allrar ham- ingju á þetta þó ekki við um allra lægstu gáfnastigin. Fólk af þeim stigum er oft ófrjótt. En samt er hér um mikið alvörumál að ræða. Þjóðfélagið hefur ríka ástæðu til þess að gera stúdentum það kleift efnalega að gifta sig, meðan þeir eru við nám og eignast sem flest börn. # Takmörkunin á aðgöngu að háskólanámi er snar þáttur þess mikla vandamáls að skipuleggja það, hvernig hæfi- leikar manna fái bezt notið sín og komið að mestu gagni í þjóðfélaginu.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.