Menntamál - 01.03.1947, Page 18

Menntamál - 01.03.1947, Page 18
12 MENNTAMÁL Dr. STEFÁN EINARSSON: Hagmælska í skólum Ég hef verið að blaða í síðasta hefti Menntamála (októ- ber 1946) og rekst þar á grein, ,,Ljóð í skólanum“, þýdda úr bók um kennslu í brezkum skólum. í sama hefti sé ég grein um nýjan skóla eftir amerískri fyrirmynd fyrir forstöðukonur og starfsstúlkur barnaheimila og aðra um kennaramót í Aberdeen eftir Stefán Júlíusson, sem verið hefur í Ameríku eins og for- stöðukona hins nýja skóla, Valborg Sigurðardóttir. Hér er þá augsýnilega að ræða um amerísk og ensk áhrif á íslenzka kenn- arastétt. Nýir skólar rísa upp, og aðferðir eru inn- leiddar eftir dæmi hins miklá enska heims. Um þetta er ekki nema gott eitt að segja, ef það, sem jafn- gott er eða betra af ís- lenzka arfinum, er ekki látið rýma sæti fyrir hinu útlenda. En mér kom í hug út af greininni um „Ijóð í skólanum“, að hér hefðu íslendingar innlendar fyrirmyndir, sem þeim bæri að leggja meiri rækt við en þeir hafa gert, síðan hinir nýju barnaskólar (1907—) voru stofnaðir. Ég á við, að þeir ættu að taka við af sveitabæjunum að halda Dr. Slefán Einarsson. (Myndin tekin hér heima á náms- árum lians.)

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.