Menntamál - 01.03.1947, Síða 23
MENNTAMÁL
17
ÁRNI GUÐMUNDSSON:
Minning 200 ára skóla
í Vestmannaeyjum
Árni Guðmundsson kennari.
höfundur þessarar greinar, er
fæddur 6. marz 1913 í Vest-
mannaeyjum. Hann stundaði
nám í Gagnfræðaskóla Reykvík-
inga og lauk þar prófi 1931-
Kennarapróf tók liann 1935.
Santa ár gerðist hann kennari
við barnaskólann í Vestmanna-
eyjum og gegnir því starfi enn.
Árni hefur lálið opinber mál til
sín tnka í Eyjum. Árið 1942 var
hann kosinn í bæjarstjórn þar,
og nú er hann forseti hennar.
Fyrsti vísirinn.
Haustið 1745 er stofnaður barnaskóli í Vestmannaeyj-
um, og er hann af mörgum talinn fyrsti barnaskóli í Vest-
mannaeyjum.*
Jóhann Gunnar Ólafsson, nú bæjarfógeti á ísafirði, sem
er með fróðustu mönnum um allt það, er lýtur að sögu
* Sigfús M. Johnsen telur í Sögu Vestmannaeyja líkur til, að hér
hafi verið starfræktur skóii þegar á j6. öld, og nefnir því til stuðnings
ornefnið „Skólahúsgarður" í umboðsr. Vestm.eyja frá 16. öld, Þjóð-
skjalas.