Menntamál - 01.03.1947, Blaðsíða 28

Menntamál - 01.03.1947, Blaðsíða 28
22 MENNTAMÁL Enn skrifar Bjarni 1868, þá stiftamtmanni. En þrátt fyrir þessa ötulu, óþreytandi baráttu, lognast málið út af. Virðist svo sem yfirvöldunum hafi gengið það eitt til með tregðu sinni og vífilengjum að ganga af málinu dauðu til þess að firra ríkissjóð ca. 200 dala útgjöldum á ári. Reistur skóli í Vestmannaeyjum. Haustið 1880, þegar Alþingi hafði sett lög um fræðslu barna, ákvað sýslunefnd að setja á stofn skóla og byggja skólahús. Af framkvæmdum varð þó ekki þá þegar, en húsið var byggt 1883—84, og tók skólinn til starfa 1. okt. 1884 — eða um 125 árum eftir að hinn fyrsta skóla leið. Fyrsti kennari við skólann var Lárus Árnason stúdent frá Vilborgarstöðum, síðar lyfsali í Bandaríkjunum, og er hann fyrsti skipaður barnakennari í Vestmannaeyjum. Skólahúsið var hlaðið úr tilhöggnum móbergssteini, í því var ein kennslustofa og eldhús niðri, en ibúðarher- bergi uppi. Varð húsnæði þetta brátt of lítið, og varð að ráði, að gamla þinghúsið, er Kohl sýslumaður lét byggja 1858—59, var rifið og byggt upp af því hús, sem bæði var notað sem skóli og þinghús. Fluttist skólinn úr sínu fyrra húsnæði (Dvergasteini við Heimagötu) og í hið nýja 1904. í þinghúsinu var sýslubókasafn Vestmanna- eyja, 3 kennslustofur og leikfimisalur, sem jafnframt var notaður sem réttarsalur. Voru þá reistar þar grindur, til þess að afkróa frá lýðnum réttarins þjóna og dómarann. Austan við skólann, áfast við, var hegningarhús Eyjanna. Voru þar tveir fangaklefar í norðurhlið, en suðurhliðin opið port eða garður til þess að viðra fangana í. Sáu börnin niður í fangahússgarðinn úr gluggum skólastof- unnar í austurgafli uppi. Ekki liðu mörg ár, áður en þetta húsnæði varð of lítið fyrir skólann, en þó var notazt við það til 1916. Hús þetta er nú notað sem póststofa og íbúðarhús (Borg), en var nm langt skeið kvikmyndahús.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.