Menntamál - 01.03.1947, Page 34

Menntamál - 01.03.1947, Page 34
28 MENNTAMÁL borg. Telur Ólafur kynni sín af honum hafa mest orðið til þess að vekja áhuga sinn á því að afla sér meiri fræðslu og helga krafta sína þeim málum. Árið 1900 gerðist Ólafur kennari í sveit sinni og gegndi því starfi óslitið til 1938. Þegar Ólafur tók við, var ekki almenn skólaskylda í landinu, sem kunnugt er, en sam- kvæmt lögunum frá 1880 var skylt að sjá börnum fyrir ,,uppfræðingu“ í lestri, skrift og reikningi, auk kristindómsins. Landssjóður greiddi lítils háttar styrk til skólahalds, ef hrepparnir óskuðu þess að halda skóla. Þessi styrkur nam 45 krónum fyrir 5 mánaða kennslu. Þetta voru laun Ólafs fyrstu árin, 9 krónur á mánuði, auk fæðis og húsnæðis, meðan skóli starfaði. Að réttu lagi átti hreppurinn að greiða Ólafi einhverja launavið- bót, en þetta voru tímar hinnar frjálsu samkeppni. Annar maður hafði boðizt til að taka starfið að sér við þessum kjörum, og varð Ólafur að sæta þeim eða missa „kjól og kall“ að öðrum kosti. Þessi var þjóðfélagsstaða kennara fyrir fjórum áratugum. Ólafur reyndi þegar að koma á kennslu í fleiri greinum en lögboðnar voru, svo sem sögu, náttúrufræði og landa- fræði. Ekki var það alls kostar vel þokkað. Minnist hann þess, að sumum börnum var bannað það af foreldrum sínum að leggja stund á slíkan óþarfa. Eitt sinn var það, að prestur spurði dreng að því á prófi, hvers vegna hann væri ekki með í náttúrufræði. Drengur, sem var vel gef- inn og fróðleiksfús, fór að hágráta. Faðir hans hafði bannað það stranglega, að hann lærði þá grein. Mun þetta eigi eina dæmið um, að ófullnægð menntunarþrá hafi komið út tárunum á íslenzkum unglingum, þótt sá harmur muni tíðar hafa verið borinn í hljóði. Að öðru leyti virtist Ólafi langflestir hafa skilning á nauðsyn skólahaldsins, og fækkaði með árunum þeim mönn- um, sem hnjóðuðu í þá starfsemi. Með samþykkt fræðslulaganna 1907 kveður Ólafur ýmis-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.