Menntamál - 01.03.1947, Síða 36

Menntamál - 01.03.1947, Síða 36
30 MENNTAMÁL Bókarfregn Pálmi Jósefsson: DÝRAFRÆÐI. Utg.: Ríkisútgáfa námsbóka. AllmÖrg undanfarin ár hefur verið tilfinnanleg vöntun á kennslu- bók í dýrafræði íyrir barnaskóla landsins. Ágrip Bjarna Sæmunds- sonar var viðfelldin kennslubók í þessari grein. En hún er að mestu alveg horfin úr umferð fyrir löngu, þvi að Ríkisútgáfa námsbóka gaf hana aldrei út af einhverjum ástæðum. Skólarnir hafa þvi um langan tíma orðið að notast við dýrafræði í þremur heftum, alls 250 bls., eftir Jónas Jónssön. Gefur að skilja, að slík hók er allt of stór kennslubók i Jressu efni. Enginn tími til að komast vandlega yfir liana, og því erfitt að búa hörnin undir próf í henni. Hins vegar mætti nota þá bók fyrir lesbók. Nú er bætt úr brýnni Jrörf. í vetur kom út kennslubók í dýrafræði handa barnaskólum eftir Pálma Jósefsson, yfirkennara við Miðbæjar- skólann í Reykjavík. Bók Jressi, sem er 95 bls., nær til allra fylkinga dýraríkisins. í henni eru um 100 myndir auk yfirlitsmynda yfir spendýr og fugla í öftustu opnu. Myndirnar eru vel valdar og vandaðar. Gera þær hókina að- gengilega og hýrlega fyrir börnin. Taka þær yfir allt að helming bókarinnar. — „Mynd er á við milljón orð.“ — Niðurröðun efnis er með öðrum hætti en við hér eigum að venjast í slikum kennslubókum. Dýrunum er yfirleitt skipað niður eftir stöð- um og umhverfi því, sent Jrtiu dveljast í. Bókin skiptist raunverulega í Jnjá meginkafla, íslen/k dýr, erlend dýr og þróun og flokkun dýranna. Er fyrst nefndi kaflinn langlengst- ur, en siðasti stytztur. Byrjað er að segja frá húsdýrum okkar og .álifuglum. Fer að sjálf- sögðu vel á Jrví, að yngri börnin lesi fyrst um Jrau dýr, sem |)au hafa mest kynni af, enda Jjótt Jrau dýr séu ekki öll í sama flokki. Næst koma mcindýr. Það er nýyrði í fyrirsögn í kennslubók. Til þeirra eru talin þau dýr úr ýmsum fylkingum og flokkum, sem valda okkur tjóni og við eigum bágt með að lifa í sambýli við. Er gott að fá þau helztu þeirra Jiarna saman. Þá koma næst önnur íslenzk dýr. Og er þeim skipað saman, eftir ])ví hvar þau halda sig. Loks koma erlendu dýrin. Þeim er raðað niður, eftir Jrví hver álfan er aðalheimkynni Jreirra. Þetta á góða stoð í landafræðinni, og tel ég það til bóta.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.