Menntamál - 01.03.1947, Blaðsíða 38

Menntamál - 01.03.1947, Blaðsíða 38
82 MENNTAMÁL Frá stjórn Sambands íslenzkra barnakennara Síðast iiðið haust fól Eyþór Þórðarson kennari á Norðfirði stjórn S.Í.B. að hafa forgöngu fyrir sig í máli stéttarlegs eðlis. Varð sam- bandsstjórn að sjálfsögðu við þeim tilmælum og fékk stjórn B.S.R.B. í lið með sér. Þykir stjórninni rétt að gera stutta grein fyrir þessu máli í tímariti kennara. Málavextir eru þessir: Eyþór Þórðarson, sem var fastur kennari við barnaskólann í Neskaupstað, hafði verið settur til þess að gegna skólastjórastöðunni við sama skófa um þriggja ára skeið (skólaárin 1943—46), en síðast liðið haust var annar maður skip- aður í það starf. Þegar skólastjóri liafði verið skipaður við skólann, var kennaraliðið fullskipað miðað við barnafjölda og einni stöðu betur, þegar staða E. Þ. er talin með. Virtist þáverandi menntamála- ráðhcrra, Brynjólfur Bjarnason, helzt líta svo á, að E. Þ. hefði þarna enga stöðu lengur, sem sjá má af því, að hætt var að greiða honum laun og lionum engin kennsla ætluð við skólann. Ef þetta hefði reynzt lögmætt, hefði af því leitt, að sá, sem settur væri til þess að gegna forslöðustarfi við opinbera stofnun og hefði fast starf fyrir við sömu stofnun, ætti á hættu að missa hina föstu stöðu, ef hann tæki að sér að gegna forstöðustarfinu. Að vísu gaf nefndur ráðherra aldrei skýr svör um málið, er lulltrúar sambandsstjórnar áttu ítrekaðar viðræður við hann um það, en við það sat í ráðherratíð hans, að E. Þ. voru eigi greidd laun og staða hans ekki viðurkennd. En áður en leitað væri aðstoðar dómstólanna urðu stjórnarskipti. Skömmu eftir að Ey- steinn Jónsson varð menntamálaráðherra, leitaði sambandsstjórnin úrskurðar hans. Sá úrskurður barst fljótt og kemur fram í bréfkafla þeim, sem hér er birtur: „ .... ráðuneytið lítur svo, að þótt Eyþór Þórðarson, sem skipaður er fastur kennari við barnaskól^nn í Nes- kaupstað, gegndi um hríð störfum sem settur skólastjóri téðs skóla og nýr kennari væri á því tímabili settur og síðan skipaður við skól- ann, hafi Eyþór síður en svo fyrirgert rétti sínum til kennarastöðu sinnar, Jiar eð hann hefur aldei sagt lienni lausri eða verið leystur írá henni. Er Ey[)ór ]>ví að sjálfsögðu fastur kennari við skólann og ber að taka laun sem slíkum frá jieim tíma, er hann liætti að taka laun sem settur skólastjóri. I-Iins vegar eru nú of margir fastir kennarar við áðurnefndan skóla, miðað við tölu skólaskyldra barna í skólahverfinu, og ber að ráða bót á því við fyrsta tækifæri ....“ Reykjavík, 8. marz 1947. Stjórn S.Í.B.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.