Menntamál - 01.03.1947, Síða 43

Menntamál - 01.03.1947, Síða 43
MENNTAMÁL 37 • SITT AF HVERJU TÆI Ný lög um menntun kennara. Frumvarp það til laga um menntun kennara, sem milliþinganefncl í skólamálum samdi, er nýlega orðið að lögum. Eru lögin í 7 köflum. I. kafli er um Kennaraskóla íslands. Skal skólinn starfa í 4 árs- deildum eins og nú. Rétt til inngöngu í liann veilir miðskólapróf bóknámsdeildar með þeirri lágmarkseinkunn, sem ákveðin er í reglu- gerð. Ákvæði, sem eigi voru í fyrri lögum, eru þau helzt, að skólinn annist einnig kennslu lyrir nemendur, senr búa sig undir uppeldis- störf önnur en kennsíu, svo sem störf við barna- og unglingaheimili, barnaleikvelli, fávitaliæli og störf á vcgum barnaverndarnefnda. Mið- skólapróf verknámsdeildar veitir einnig rétt til að stunda þess konar nám. Þá er þar ákvæði um, að kennarapróf í almennum námsgreinum, svo sem íslenzku, erlendum tungumálum, náttúrufræði, landafræði og sögu, hafi stúdentsprófsgildi, þannig að kennarar, sem lokið hafa al- mennu kennaraprófi eftir þessum lögum, þurfa ekki að endurtaka próf í þessum greinum, ef þeir vilja ljúka stúdentsprófi, heldur aðeins í öðrum greinum, sem ekki eru kenndar til kennaraprófs. II. kafli er unt kennslustofnun í uppeldisvfsindum við Háskóla Is- lands. Skal hún sett á stofn, þegar fengin er aðstaða til æfinga- og tilraunakennslu. Hlutverk hennar er að veita kennurum við barna- skóla og skóla gagnfræðastigsins, menntaskóla og sérskóla menntun í uppeldisfræði, sálarfræði og kennslufræði. Auk þess skulu kennarar í uppeldisvísindum annast rannsóknir og leiðbeiningar í þágu upp- eldismála landsins, eftir því sem samrýmist kennslustörfum þeirra. Rétt til að stunda nám í þessari stofnun og taka þar próf hafa allir þeir, sem lokið hafa almennu kennaraprófi, svo og stúdentar. III. kafli fjallar um æfinga- og tilraunaskóla. Um lilutverk lians segir í lögunum: „Skólinn starfar sem æfingaskóli kennaraskólans. Skal liann hafa uppeldis- og kennslufræðilegar athuganir með hönd- um, einkum varðandi barnafræðslu og gagnfræðanám. Skal hann og hafa forgöngu urn, að slíkar atliuganir verði gerðar í öðrum skólum og unnið úr þeim. Þá getur fræðslumálastjórn falið skólanum að ann- ast útgáfu leiðbeiningarrita fyrir kennara og aðra uppalendur, enn fremur samningu og útgáfu verkefna fyrir skólana, m. a. verkefna í landspróf." IV. kafli er um íþróttakennaraskóla íslands. „Markmið skólans er að búa nemendur undir: 1) sérkennslu í íþróttum í barna- og gagn-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.