Menntamál - 01.03.1947, Síða 46
40
MENNTAMÁL
Þar gætu ólæknandi drykkjumenn átt fastan samastað við góða aðbúð
og hæfileg störf.“
Þá segir læknirinn enn fremur: „Þetta fyrirkomulag, sem hér er
bent á og lagt til, að upp verði tekið í baráttunni við áfengissjúk-
dóma, er ldiðstætt því, sem þegar er tíðkað hér á öðrum sviðum
heilbrigðisgæzlunnar. Berklavarnarstöðin leitar uppi berklasjúklinga,
rannsakar þá, veitir þeim ráðleggingar og lítur eftir árangri. Hún er
í senn heilsúverndar- og lækningastöð. Að bakhjalli hefur hún berkla-
spítala og vinnuhæli. Eftir að þetta lag hafði verið upp tekið, fór
baráttan við berklaveikina að verða sigurvænlegri."
Nýr menntcimálaráðherra.
Eysteinn Jónsson er menntamálaráðherra í stjórn Stefáns Jóh. Ste-
fánssonar. Hans bíða nú mörg og mikil verkefni, sem fólgin eru í
framkvæmd hinnar nýju fræðslulöggjafar. Má þar m. a. nefna: 1) að
sjá skólum landsins fyrir húsnæði, þar sem þess er vant, 2) koma skól-
um gagnfræðastigsins í það horf, sem lögin gera ráð fyrir, 3) bæta úr
því liróplega misræmi, sem er á menntunarskilyrðum landsins barna,
4) að gera starfsskilyrði skóla þannig úr garði, hvar sem er á landinu,
að hæfir kennarar fáist til þess að starfa við þá, 5) láta semja reglu-
gerðir og námsáætlanir á grundvelli hinna nýju laga, 6) konia skipan
á kennaramenntunina.
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA.
Útgáfustjórn: Ármann Halldórsson ritstjóri, Guðmundur Pálsson
og Jón Kristgeirsson.
PRENTSMIÐJAN ODDI H.P.