Menntamál - 01.04.1957, Qupperneq 12
+"—"■—">—■■—""—■■—■■—1111—"■—"■—""—’"—■“—""—"■——""—""—>"—»—""—"■—»-• •
AUGLÝSING
frá menntamálaráduneytinu
Menntamálaráðuncytið vill hér með brýna fyrir fræðsluráð-
um og skólanefndum, að nauðsynlegt er að auglýsa svo snemma
að vorinu sem unnt er þær skólastjóra- og kennarastöður, sem
lausar kunna að vera, þó þannig, að prófum í Kennaraskóla
íslands sé lokið nokkru áður en umsóknarfrestur rennur út, svo
að hinum nýju kennurum gefist kostur á að sækja um störfin.
Sé um íþróttakennarastöður að ræða, skal miða umsóknarfrest
við, að prófum í íþróttakennaraskóla íslands sé lokið áður en
umsóknarfrestur rennur út. Ber að senda fræðslumálastjóra sem
allra fyrst á árinu upplýsingar um, hvaða stöður á að auglýsa og
senda honum síðan strax að umsóknarfresti liðnum tillögu aðila
um setning í störfin. Einnig skal, svo fljótt sem unnt er, senda
fræðslumálastjóra tillögur um skipun þeint til handa, sem
gegnt hafa skólastjóra- eða kennarastöðum sem settir tilskil-
inn tíma, en skipa á.
Telur ráðuneytið nauðsyn bera til, að þessi háttur verði
upp tekinn, til þess að komast hjá þeim óþægindum, er því
fylgja fyrir alla aðila, er slík mál berast fræðslumálastjóra og
ráðuneyti eigi fyrr en í þann mund, er skólar eru að hefjast
að haustinu. Væntir ráðuneytið góðs samstarfs við alla aðila
um að hraða afgreiðslu þessara mála.
Til þess að tryggt sé, að þeir, sem um umsóknirnar eiga
að fjalla, fái strax í hendur nægilegar almennar upplýsingar
um umsækjendur, hefur ráðuneytið látið gera sérstök umsókn-
areyðublöð, sem verða fáanleg lijá fræðslumálastjóra, skóla-
nefndum og fræðsluráðum, og er þess vænzt, að kennarar
noti þau eyðublöð undir umsóknir sínar.
Menntamálaráðuneytið, 11. febrúar 1957.
Gylfi I*. Gíslason.
Birgir Thorlacius.