Menntamál - 01.04.1957, Side 21

Menntamál - 01.04.1957, Side 21
MENNTAMÁL 7 þetta. Glíman við hluti og fyrirbæri umhverfisins og sam- vistir við greint og vel talandi fólk er öruggasta leiðin til þess, að barnið leggi niður röng form smábarnamálsins, afli sér allmikils orðaforða og nái góðum tökum á mæltu máli. Jafnframt þjálfast börnin í einbeitingu athyglinn- ar og öðlast nokkurn félagsþroska, en á hvorttveggja reynir mjög í skólanámi. Flest andlega heilbrigð börn ganga eftir þessari umsinningu með spurningum sínum um margt, sem fyrir augu ber eða vaknar upp í huga þeirra. Ef þeim er ekki sinnt, dofnar þekkingarþráin. En ef leyst er úr spurningunum með fræðslu við barna hæfi og þeim kennt að athuga og skýra fyrir sér fyrir'bæri umhverfisins, njóta þau gleðinnar við að auka þekkingu sína og horfa fram til skólans, sem þau vænta sér meiri þekkingar af. Meðan barnið er ungt og hefur lítil eða eng- in kynni af skóla, ræður afstaða foreldra til skólans miklu. Það verður fyrir beinum áhrifum af tali foreldra um hann og tekur sér ósjálfrátt til fyrirmyndar afstöðu þeirra til bókarinnar. Því miður tekst mörgum foreldrum þetta lakar, ef þeim er ekki lagið að hlú að andlegum þroska ungs barns, held- ur geyma það til skólaáranna. Þeir gera sér ekki grein fyrir því, að almennur þroski barnsins 3—5 ára gamals sé mikilvægur fyrir skólanám, sem enn er langt undan. Því skortir mjög bæði á félagsþroska og raunskilning margra barna, þegar þau byrja skólanám. Ekki veldur einbert ræktar- og skilningsleysi þessari vanrækslu. Oft sprettur hún af óviðráðanlegum ástæð- um: fátækt, vanheilsu eða greindarskorti foreldranna sjálfra. Heimili margs barns er afar fátæklegt að andlegri uppörvun, umönnunin takmarkast við næringu og húsa- skjól, en reynslu sína fær barnið á útigangi með misjöfn- um félögum. Úr slíku umhverfi koma oft illa þroskuð börn í skólann, en fyrir hann er það miklum erfiðleikum bund- ið að bæta eftir á úr orðinni vanrækslu. Löngu áður en
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.