Menntamál - 01.04.1957, Qupperneq 47
MENNTAMÁL
33
Fulltrúar frá 26 löndum og áheyrnarfulltrúar frá 6
löndum, — auk þess frá Sameinuðu þjóðunum, Alþjóðlegu
vinnumálaskrifstofunni (ILO) og frá Menntamála-, vís-
inda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNES-
CO), alls um 180 manns, gengu inn í salinn. Aðstoðarmenn
vísuðu hverjum fulltrúa til þess sætis, er honum hafði
verið fyrirbúið. Á borðinu framan við sæti hans stóð lítill
þjóðfáni lands hans, ennfremur nafn hans og lands hans,
fagurlega letrað á allstórt spjald, fest á grind, er stóð á
hárri brík fremst á borðinu. Mér hlýnaði um hjartað við
að sjá íslenzka fánann á þessum fjarlæga stað, þarna átti
ég að sitja. Á borðinu til vinstri við mitt borð stóð fáni
Vestur-Þýzkalands, en á borðinu til hægri fáni Indlands.
Þvert yfir salinn innst var allmikill pallur. Þar tóku
stjórnendur þingsins sér sæti. Þaðan höfðu þeir gott út-
sýni yfir salinn og blöstu við þingheimi. Yzt hægra megin
á pallinum settist aðalritari heimssambandsins, William G.
Carr frá Washington, næst honum formaður þess, Ronald
Gould frá London, þá varaformaðurinn, Emil Hombourger
frá París, og síðan aðrir stjórnarmenn út frá honum.
Klukkan er orðin 15.30. Setning þingsins hefst með því,
að Herhljómsveit Filippseyja leikur þjóðsöng lands síns.
Þá flytur fulltrúi borgarstjóra Maniluborgar ávarp og
býður þingfulltrúa velkomna til Manilu. Næst flytur
ríkisforseti Filippseyja, Ramon Magsaysay, ræðu, sem
vakti mikla hrifningu áheyrenda. Að þeirri ræðu lokinni
varð nokkurt hlé. Þessu næst lék hljómsveitin aftur, að
bessu sinni nokkra kafla úr sígildum tónverkum. Þá flutti
ræðu Roman Lorenzo, formaður Kennarafélags Filipps-
eyja (PPSTA = Philippine Public School Teachers As-
socition), en það félag skipulagði þetta þing, annaðist
stjórn þess og kostaði það að verulegu leyti. Hlaut félagið
verðskuldað lof fyrir röggsemi, háttvísi og frábæra gest-
Usni vegna starfa sinna í þágu þingsins og þingfulltrú-
anna. — Ávörpum þessum svaraði síðan formaður heims-