Menntamál - 01.04.1957, Page 50

Menntamál - 01.04.1957, Page 50
36 MENNTAMÁL barnanna, sem stóðu úti fyrir húsinu í þéttum hóp. Mig hafði aldrei órað fyrir, að svo stór hópur barna, sem virt- ust vera á aldrinum 8—12 ára, gæti komið svo prúðmann- lega og fallega fram sem þessi hópur gerði. Ekki var þó að sjá, að börnin væru undir neinum sérstökum aga eða gæzlu þessa stund. Þau voru hýrleg á svip, en ofurlítið feimin, ef ókunnugir ávörpuðu þau. Hróp, hrindingar og kerskilegt orðbragð virtist óþekkt fyrirbæri meðal þess- ara barna. Síðar um daginn heimsóttu fulltrúarnir tvo aðra skóla, barnaskóla og iðnskóla. Móttökur á báðum stöðum voru hlýjar og alúðlegar, en viðstaðan of stutt til þess, að ég gæti áttað mig verulega eða eignazt minningar um það, sem bar fyrir augu. Viðstaðan í síðara skólanum átti að verða alllöng. En jafnvel í hitabeltinu getur veður breytt áætlunum manna. Fararstjóri lét stöðva bifreiðarnar, þeg- ar komið var að þvervegi, um tveggja kílómetra löngum, sem lá heim að skólanum um dimman, þykkan skóg. Það varð að samkomulagi, að allir gengju þennan spöl. En þegar sá hópur, sem ég var í, hafði gengið um 10 mínútur, tók að rigna. Vatnið fossaði úr loftinu. Vér leituðum skjóls undir gólfi stólpahúss nokkurs, sem var á næstu grösum, og hímdum þar, unz ein bifreiðin kom og hirti oss upp. Gegndrepa vorum vér orðnir, áður en vér kom- umst í þetta afdrep. Það gerði oss að vísu ekkert til í bili, því að heitt var í veðri þrátt fyrir regnið. Vér — og flestir hinir ferðalangarnir — komumst að vísu heim að skólanum, en regnið hafði gert allt skipulag að engu og áhuga manna í þokkabót. Eftir þetta var haldið viðstöðulaust til Baguio. Ferðin sóttist vel. Um það leyti, sem myrkrið skall á, tóku við langar, brattar brekkur. Vegurinn lá í ótal bugðum upp eftir hlíðum fjalllendis þess, er Baguio stendur í. Kvöldið var niðdimmt, því að himinninn var regnþungur. Vér tókum að kenna nokkurs svala, sem æ jókst eftir því, sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.