Menntamál - 01.08.1970, Qupperneq 4
Menntun
fullorðinna
^______________________________________________/
Eitt af brýnni úrlausnarefnum í íslenzkum
skólamálum er skipulagning kennslu fólks,
sem komið er af skólaaldri. Um alllangt skeið
hafa að vísu starfað námsflokkar, bréfaskólar
og tungumálaskólar, auk útvarpskennslunn-
ar. En þessi ágæta starfsemi leysir aðeins að
takmörkuðu leyti þann þátt fullorðinnakennsl-
unnar, sem er án tengsla við skólakerfið.
Hinum þættinum, námi, sem stefnir að viður-
kenndu prófi í ákveðinni námsgrein eða full-
kominni starfsmenntun á einhverju sviði,
hefur enn ekki verið nægur gaumur gefinn
hér á landi.
Fullorðið fólk, sem af einhverjum ástæðum
hefur farið á mis við þá menntun, sem hugur-
inn stendur til eða óskar að skipta um starf,
þarf að eiga þess kost að stunda nám sam-
hliða starfi í hæfilegum áföngum og með
þeim hraða, sem hverjum og einum hentar.
Til þess að námstilboð til fullorðins fólks
verði annað en nafnið, þarf að tilreiða náms-
efnið með sérstökum hætti og gefa fólki kost
á að stunda námið bréflega, gegnum útvarp
og á síðdegis- eða kvöldnámskeiðum. Við
miðlun þekkingarinnar verður að hagnýta hina
margvíslegu möguleika nútíma kennslutækni,
m. a. prógrameringu efnis með fjölbreyttum
tækifærum eintaklinganna til stöðugs náms-
mats.
Prógramering námsefnis, sem miðast að
verulegu leyti við sjálfsnám, er mikið vanda-
verk og seinunnið, þótt vafalaust sé hægt að
fá góðar fyrirmyndir erlendis frá. Nauðsyn-
legt er að koma á fót stofnun á vegum ríkis-
ins, til að annast þennan þátt almannafræðsl-
unnar, og tryggja henni sambærilegan laga-
og fjárhagsgrundvöll og öðrum framhalds-
skólum.
Auðvitað kostar þetta mikið fé, en á hinn
bóginn má vera Ijóst, að unnt er að fjölga
verulega sérhæfðum starfskröftum með þess-
um hætti — auk þess er hér um að ræða
brýnt geðverndarmál þeirra einstaklinga, sem
lent hafa á rangri hillu í lífinu og una ekki
hlutskipti sínu.
MENNTAMÁL
118