Menntamál - 01.08.1970, Qupperneq 7
listrœnt uppeldi nernenda i skúla áttunda ára-
tugarins.
í sal C flutti Jónas Pálsson, forstöðumaður,
erindi um stöðu hins námslrega í skyldunámsskól-
anum. Erindi Jónasar var höfuðframlag íslend-
inga til mótsins.1) I*á talaði Kristen d'homsen
Jensen, fræðslustjóri, frá Danmörku um náms-
og starfsráðgjöf i skólanum.
í sal D ræddi Erkki Aho, skrifstofustjóri, frá
Finnlandi um tengsl forskóla og barnaskóla, og
Odd Ramsfjell, magister, frá Noregi talaði um
skapgerðarmótun i skóla áttunda áratugarins.
Eftir hádegishlé hlýddu allir þátttakendur
sarnan á erindi dr. Kosti Huuhka frá Finnlandi
um hina œvilöngu skólun og ræðu K. Helveg
1) Erindi Jónasar birtist í heild í Morgunblað-
inu 2. okt. sl.
Petersen, menningarmálaráðherra Dana, um
kennslu og uppeldi til gagnkvccms skilnings
pjóða á milli.
7 ■ ágúst
Fyrir hádegi skiptust þátttakendur í þrjá hópa.
1 sal A flutti Britta Stenholm, fræðslustjóri, frá
Svíþjóð erindi um endurbœtur á menntun kenn-
ara i listum og handíðum. Ennfremur talaði
Stefan Haglund frá Svíþjóð um gœðamal á kenn-
aramenntuninni — rannsóknarverkefni.
í sal B ræddi Eva Nordland, dósent, frá Noregi
um framhalds- og endurmenntun kennara og
skólastjóra, og var umræðufundur að Jjví erindi
loknu með þátttöku frá öllum Norðurlöndun-
urn. Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri, tók þátt
í umræðunum af íslendinga hálfu.