Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Síða 17

Menntamál - 01.08.1970, Síða 17
lagaákvæða um skólabókasöfn. Verði allur kostnaður við uppbygg- ingu slíkra safna greiddur af op- inberu fé í sama hlutfalli og önnur kennslutæki. Samkvæmt reglum, er ráðuneytið setji i samræmi við stærð skóla, verði ákveðnum kennara hvers skóla falin bókavarzla, og verði hún hluti af starfsskyldu hans. Jafnframt gefist bókavörðunum kost- ur á vissri starfsmenntun, áður en þeir taka við starfi. Hlutverk skólabókasafna eru eink- um þessi: a) Að vera virkur þáttur í fræðslu- og uppeldisstarfi skólans. b) Að kenna nemendum að nota bækur og bókasöfn sér til gagns og æfa þá í sjálfstæðri heimilda- söfnun af bókum. c) Að veita nemendum kost á gagn- legu og þroskandi lesefni til tómstundalestrar. Bókakost skólabókasafna ber að miða við, að þau séu fær um að rækja þær skyldur, sem um er rætt hér að framan. I bókakostinum sé að finna: a) Hentug uppsláttar- og fræðirit í þeim greinum, sem kenndar eru í skólanum, sum þeirra í nokkr- um eintökum, b) önnur rit, skáldrit og fræðirit, sem hentug geta talizt nemend- um til tómstundalestrar og sjálf- stæðrar heimilda- og þekkingar- öflunar. Þingið telur að stefna beri að því, að kennarar með sérmenntun til þókasafnsstarfa í skólum skuli ráðn- ir til þessara starfa á sama grund- velli og aðrir kennarar skólanna. Um aSild S.Í.B. aS B.S.R.B, 21. fulltrúaþing Sambands ísl. barnakennara 1970 lýsir yfir sam- þykki sínu við það álit sambands- stjórnar, að sambandið neyðist til að endurskoða afstöðu sína til B.S.R.B. Þingið samþykkir því að kjósa fimm manna nefnd til þess, ásamt væntanlegri sambandsstjórn, að taka til rækilegrar athugunar þátttöku sambandsins í B.S.R.B. Komist þessi nefnd og sambands- stjórn að þeirri niðurstöðu, að sam- bandinu verði hagkvæmara að segja sig úr B.S.R.B., skal sambandsstjórn undirbúa úrsögn með löglegum hætti fyrir næsta fulltrúaþing á kom- andi ári. Um aukafulltrúaþing 21. fulltrúaþing S.Í.B. 1970 telur, að eigi verði hjá því komizt að halda aukafulllrúaþing sambandsins í öndverðum janúarmánuði n.k. Fel- ur þingið sambandsstjórn að ákveða nánar þingdaga og boða til þings- ins. Um heimild til verkfallsboðunar 21. fulltrúaþing S.Í.B. 1970 litur svo á, að með síðasta dómi Kjara- dóms hafi með öllu brostið þær von- ir, er kennarar skyldunámsins bundu við sanngjarna lausn í kjaramálum stéttarinnar, auk þess sem Kjara- dómur hefur með úrskurðum sinum glatað því lágmarkstrausti, sem til hans verður að bera. Af þessum sökum skorar þingið á alla kennara að sameinast nú iil öflugrar sóknar í kjaramálunum og veitir því stjórn S.Í.B. heimild til verkfallsboðunar, ef viðunandi kjara- bætur fást ekki á þessu ári. Samþykktir um launa- og kjaramál I. 21. fulltrúaþing Sambands ísl. barnakennara, haldið í Melaskólan- um dagana 5.—7. júní 1970, legg- ur áherzlu á, að kaupmáttur launa opinberra starfsmanna og annarra launþega hefur rýrnað mjög mikið siðustu ár. Þar sem launabaráttan hefur ekki borið þann árangur að undanförnu, sem menn hafa vænzt, þarf nú þegar að herða baráttuna fyrir bættum kjörum. Þingið krefst þess, að opinberir starfsmenn verði ekki verr launaðir en gerist fyrir sambærileg störf á hinum almenna launamarkaði, að grunnlaun hækki um a. m. k. 30— 35%, að full verðlagsuppbót verði greidd á grunnlaunin, að stað- greiðslukerfi skatta verði tekið upp, eins fljótt og auðið er, að skattvisi- tala fylgi raunverulegum hækkun- um vöruverðs og þjónustu. Þingið lýsir yfir, að ýmsir þættir í drögum að starfsmati séu rang- lega metnir hvað snertir barnakenn- ara og krefst þess, að þeir séu endurskoðaðir, áður en drögin verði lögð til grundvallar í kjarasamn- ingum. Þingið ítrekar fyrri samþykktir kennarasamtakanna um nauðsyn þess, að ríkisvaldið endurskoði af- stöðu sína til launakjara barnakenn- ara. Þau laun, sem barnakennurum eru nú ætluð, eru svo lág, að ekki er unandi við. Barnakennarar geta ekki séð sér og sínum farborða af þeim, nema leggja á sig mikla auka- vinnu, bæði í skólatímanum og í sumarleyfum. Því hefur stöðugt verið haldið fram af ríkisvaldinu, að kennarar ættu að drýgja tekjur sínar með vinnu í sumarleyfum, og af þeim sökum væri eðlilegt, að laun kenn- ara væru lægri en laun annarra starfsmanna ríkisins með sambæri- lega menntun. Það hefur hins veg- ar komið i Ijós, að mörgum kenn- urum hefur ekki tekizt eins og áður að fá vinnu i frítimum sínum, því að aðrir m. a. námsmenn eru látnir ganga fyrir, eins og sanngjarnt er. Vinna kennara að óskyldum störf- um er hemill á framfarir í skóla- málum, sem tíðkast hvergi meðal þeirra þjóða, er teljast til menning- arþjóða. II. 21. fulltrúaþing Sambands ísl. barnakennara, haldið i Melaskólan- um dagana 5.—7. júní 1970, felur sambandsstjórn að vinna að bættum kjörum barnakennara á sama grund- velli og fyrri þing hafa samþykkt, MENNTAMÁL 131

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.