Menntamál - 01.08.1970, Qupperneq 28
6. gr.
Yfirvinnu skal greiða með álagi á dagvinnutíma-
kaup.
Eftirvinnu svo og matartíma á tímabilinu frá kl.
8,00 til kl. 19,00, ef unnir eru, skal greiða með 50%
álagi miðað við dagvinnukaup, en unna nætur- og
helgidagatíma með 90% álagi miðað við dagvinnu-
kaup.
Dagvinnutímakaup kennara fyrir kennslustund skal
fundið með því að deila árlegum kennslustunda-
fjölda miðað við 9 mánaða skóla í árslaunin. Öll
yfirvinna skal greidd eftir á í einu lagi fyrir hvern
mánuð og eigi síðar en 5. dag hvers næsta mánaðar.
7. gr.
Sjá núverandi 12. gr. kjaradóms.
Aftan við hana bætist;
Starfi skóli lengur árlega en 9 mánuði, greiðast
hlutfallslega hærri laun til kennara og skólastjóra.
8. gr.
Sérsamning skal gera vegna óhóflegs vinnuálags
Jteirra skólastjóra, er hafa á hendi stjórn í heima-
vistarskólum og í tví- eða þrískiptum gagnfræðaskól-
um.
9. gr.
Sjá 15. gr. kjaradóms.
Aðalfundur
Fóstrufélag Islands
ASalfundur Fóstrufélags íslands var haldinn 28. okf.
sl. ( stjórn félagsins voru kjörnar:
Þórunn Einarsdóttir formaður,
Hrafnhildur Sigurðardóttir gjaldkeri,
Svandís Skúladóttir ritari og
Margrét Pálsdóttir meðstjórnandi.
í skýrslu formanns um starfsemi félagsins á s.l. ári
sagði m.a.: Tvö námskeið voru haldin á vegum Fóstru-
félagsins og Sumargjafar. Sóttu þau um 60 fóstrur. Á
námskeiðum þessum fór fram kennsla í átthagafræði,
leikbrúðugerð og meðferð brúðuleikhúss, rythmik og
meðferð ásláttarhljóðfæra.
Á félagsfundi, sem haldinn var í júní s.l., kom vram
almennur áhugi hjá fóstrum á væntanlegri starfsemi
sex ára deildanna, og í sept. s.l. sóttu 15 fóstrur nám-
skeið, sem haldið var fyrir kennara þessara deilda. Eín
fóstra, sem jafnframt er kennari, starfar nú við slíka
deild í Reykjavík i vetur, en tvær fóstrur utan Reykja-
víkur.
Vænta fóstrur þess, að með gildistöku nýju fræðslu-
laganna muni þær öðlast réttindi til starfa við sex ára
deildir barnaskólanna.
Norræn fóstruþing hafa verið haldin á fjögurra ára
fresti um langt skeið. íslenzkar fóstrur hafa sótt þessi
þing síðan 1956.
Ákveðið hefur verið, að næsta þing skuli haldið hér
á landi árið 1972, og er þegar hafinn undirbúningur
þess.
Aðalfundur
Félags háskólamenntaðra
kennara
Aðalfundur Félags háskóla-
menntaðra kennara var haldinn að
Hótel sögu föstudaginn 12. júní
s.l.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa,
voru helztu viðfangsefni fundar-
ins kjaramál með sérstöku lilliti
til starfsmats, tillögur um mennt-
un og réttindi bóknámskennara á
gagnfræðastigi og félagsmál há-
MENNTAMÁL
142
skólamenntaðra kennara.
Á fundinum urðu miklar um-
ræður um Jvessi mál.
Fundurinn gerði ályktun um
síðustu driig að starfsmati og
lýsti stuðningi við kerfisbundið
starfsmat unnið á vísindalegan
hátt. Fnn fremur voru gerðar álykt-
anir um kennaramenntun og
kjaramál, félagsmál háskólamennt-
aðra kennara og um framkvæmd
og fyrirkomulag námskeiða fyrir
starfandi kennara.
Fundurinn lýsti yfir stuðningi
við verkamenn i yfirstandandi
kjaradeilu.
Jón B. Hannibalsson lét nú af
formennsku í félaginu en nýkjör-
inn formaður félagsins er Ingólf-
ur A. Þorkelsson B.A.
Aðrir í stjórn eru Auður Torfa-
dóttir M.A., Guðlaugur Stefáns-
son B.A., Haukur Sigurðsson B.A.
og Hörður Bergmann B.A. I vara-
stjórn eru Gunnlaugur Sigurðs-
son B.A. og Þorstéinn Magnússon
cand. oecon.