Vorið - 01.03.1946, Page 5

Vorið - 01.03.1946, Page 5
VORIÐ 3 er gott útsýni, og ekki skortir heil- næmt loft.“ Hún settist því rétt á milli fótanna á hamingjusama kon- ungssyninum. „Ég hef gullbúið svefnherbergi," sagði hún lágt við sjálfa sig, þegar hún litaðist um og bjóst til að taka á sig náðir. En rétt þegar hún var að stinga höfðinu undir væng sér, datt stór vatnsdropi ofan á hana. „betta er skrítið,“ sagði hún. Það er lieiðskírt, og hvergi sést votta fyrir skýhnoðra á himninum. Stjörnurnar blika og'glitra, en samt er rigning. Loftslagið hérna í Norð- ur-Evrópu er ekki upp á marga fiska. Ilmreyrnum góða þótti vænt um rigninguna, en það var af ein- skærri eigingirni.“ Þá féll annar dropi úr lofti. „Hvaða gagn er eiginlega að standmynd, ef hún getur ekki verið til skjóls í rigningu?" sagði hún. Ég verð að svipast um eftir notaleg- uin reykháf," og hún ákvað að hafa sig á burt. En áður en hún hafði lyft vængj- unum til flugs, féll þriðji dropinn, og hún leit upp og sá — Já, hvað haldið þið, að hún hafi séð? Augu konungssonarins hamingju- sama voru full af tárum og tár íunnu niður eftir hinum gullnu kinnum hans. Andlit hans var svo fagurt í tunglsljósinu, að hjarta svölunnar fylltist meðaumkun. „Hver ert þú?“ sagði hún. „Ég er hamingjusami prinsinn." „Hvers vegna grætur þú þá?“ spurði svalan. „Þú hefur gert mig holdvota." „Þegar ég var á lífi og bar rnann- legt hjarta í brjósti mér,“ svaraði standmyndin, „þá þekkti ég ekki til tára, því að ég bjó í höll þeirri, er Vanangur nefndist, og þar er sorginni ekki veittur aðgangur. Á daginn lék ég mér með félögum mínum í hallargarðinum, en á kvöldin stjórnaði ég dansinum í viðhafnarsalnum, en ég lét undir liöfuð leggjast að forvitnast um það, sem var handan við múrvegginn, því að allt, sem var umhverfis mig innan hans, var svo dásamlega fall- egt. Hirðmenn mínir kölluðu mig hamingjusama konungssoninn, og hamingjusamur var ég, ef skemmt- anir geta kallast hamingja. Þannig lifði ég, og þannig dó ég. En nú }:>egar ég er dáinn, hafa þeir sett mig hér í svo háan sess, að ég get séð eymdina og skuggahliðarnar í borginni, og þótt hjartað í mér sé úr blýi, get ég ekki varizt gráti." „Hvað er þetta, hann er þá ekki úr gulli að öllu leyti!“ sagði svalan við sjálfa sig .Hún var of kurteis til að láta nærgöngular athugasemd- ir til sín taka. „Langt í burtu,“ hélt standmynd- in áfram í lágum hljómþýðum rómi, „langt í burtu héðan við þrönga götu er lítið fátæklegt hús. Einn glugginn er opinn, og í gegn- um hann get ég séð konu, sem situr

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.