Vorið - 01.03.1946, Side 7

Vorið - 01.03.1946, Side 7
V O R I Ð 5 tilbúinn fyrir liirðdansleikinn," svaraði hún, „ég lief beðið saurna- konuna að sauma í hann blóm, en saumakonum er annað betur gefið en kappsemi við vinnu sína.“ Svalan flaug yfir ána og sá ljós- kerin á siglutrjám skipanna. Hún fór yl'ir Gyðingahverfið og sá gömlu Gyðingana semja um kaup sín á milli og vega peninga í stórum koparvogum. Að síðustu kom hann að fátæklega húsinu og gægðist inn. Drengurinn bylti sér veikur í rúnrinu, og móðirin hafði sofnað út af; hún var svo þreytt. Svalan hoppaði inn um gluggann og lagði stóra roðasteininn á borðið hjá fjngurbjörg konunnar. Síðan flaug liún varlega í kringum rúmið og veifaði vængjunum til að kæla enni drengsins. ,,En sá blessaður svali,“ sagði drengurinn. „ég held, að mér hljóti að .vera að batna,“ .og hann sofnaði vaerum svefni. Þá flaug svalan aftur til konungs- sonarins hamingjusama og skýrði honum frá því, sem hún hafði gert. ,,Það er skrítið," sagði hún, „en mér er orðið alveg hlýtt, þótt kalt sé í veðri.“ ,,Það er vegna þess, að þú hefur tinnið góðverk," sagði konungsson- urinn. Og litla svalan fór að liugsa og solnaði von bráðar. Hún varð alltaf SVo syfjuð af því að hugsa. Þegar dagur rann, flaug hún nið- úr að ánni og fékk sér bað.. „Þetta er stórmerkilegt fyrir- brigði,“ sagði prófessorinn í fugla- fræði, í því hann gekk yfir brúna. „Svala að vetrarlagi!“ Og hann skrifaði langa grein um liana og sendi til blaðsins þar í borginni. Allir vitnuðu í greinina. Hún var svo full af orðum, sem þeir ekki skildu. „í kvöld legg ég af stað til Egypta- lands,“ sagði svalan og var í bezta skapi, þegar hún hugsaði til þess. Hún fór um borgina, skoðaði það helzta af opinberum byggingum, sem þar var að sjá og sat heillengi el'st á kirkjuturninum. Hvar sem hún fór tístu spörfuglarnir: „Gest- urinn sá arna er heldur en ekki fyr- irmannlegur,“ svo að hún skemmti sér prýðilega. Þegar tunglið kom upp, flaug hún aftur til hamingjusama kon- ungssonarins. „Get ég rekið nokkur erindi fyrir þig I Egyptalandi?“ sagði hún, „ég er í þann veginn að leggja af stað.“ „Svala, svala, litla svala,“ sagði prinsinn, „viltu þá ekki vera hjá mér um kyrrt eina nótt til?“ „Það er beðið eftir mér í Egypta- landi,“ svaraði svalan. „Á morgun munu vinir mínir fljúga upp eftir ánni að næstneðsta fossinum. Þar lætur flóðhesturinn fyrirberast inn- an um sefið, og guðinn Memnon situr þar á veglegu hásæti úr.granít.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.