Vorið - 01.03.1946, Blaðsíða 15

Vorið - 01.03.1946, Blaðsíða 15
V O R I Ð JÓH. ÓLI SÆMUNDSSON: Við gluggann Annan eða þriðja dag nýja ársins átti skólinn að byrja. Skólinn! Ég var hrifinn, alveg hugfanginn af tilhugsuninni urn skólagöngu og nám í mörgum bókum, félagsskap með fleiri börnum og daglega til- breytni frá viðburðnm fámenns heimilis. Ég var á ellefta árinu og hafði ekki gengið á neinn skóla, en ég var orðinn sæmilega læs, byrjaður ofur- lítið að skrifa og búinn með fyrra •hlutann af margföldunartöflunni. Þetta hefði nú þótt heldur lítið núna hjá svona gömlum snáða, en ég kunni reyndar ýmislegt fleira, t. d. margar vísur og lög, vers og bæn- ir. Eg gat líka gert ýmislegt. Ég kunni bæði að raka og slá. Mér þótti afar gaman að slættinum, en samt rakaði ég meira, því að þess var meiri þörf. Svo kunni ég ögn að prjóna, gat tvinnað á halasnældu og þótti mér garnan að því síðar- nefnda. Við það var dálítil hreyf- ing. Við það gat ég sungið og ég sparaði það víst ekki. Ég var alltaf syngjandi, úti jafnt sem inni. Ég kunni lög við alla helztu jólasálm- ana og söng allt, sem ég kunni og við átti á jólanóttina. Pabbi og rnamma höfðu mjög gajnan af því og það hvatti mig ákaflega mikið í öllum efnum, þegar ég varð þess var, að þeim líkaði vel. Já, skólinn átti að fara að byrja. Pabbi var búinn að gefa mér ís- lendingasögu eftir Boga Th. Mel- steð, barnabiblíu eftir séra Magn- ús Helgason og séra Harald Níels- son, landafræði efcir Karl Finn- bogason, náttúrufræði eftir Bjarna Sæmundsson og skólaljóð Þórhalls Bjarnasonar biskups. Ég var afskap- lega hrifinn af þessari bókaeign og pabba þakklátur fyrir þær. Mamma hafði saurnað handa mér skólatösku úr striga og merkt liana með stöfunum mínurn. Það þótti mér falleg taska. Svo saumaði liún handa mér Ijósgráar buxur og gaf mér jafnframt röndótta peysu, sem mér fannst hin mesta gersemi. Ég var því sæmilega við því bú- inn að fara að ganga á skólann. Að vísu átti ég enga yfirhöfn, en það gerði ekkert til. Ég var vanur að vera úti, þó að kalt væri, og ég átti hlýja ullarvettlinga, mórauða, og röndótt hálsnet úr ull, sem liægt var að breyta í tvöfalda skotthúfu, sem náði ofan fyrir eyru og samt var eftir nóg til að tvívefja utan um hálsinn á mér. Gangan í skólann

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.