Vorið - 01.03.1946, Síða 19

Vorið - 01.03.1946, Síða 19
V O R I Ð 17 ur þinni. Og þessi, þegar þú neitað- ir henni um að færa pabba kaffið, vegna þess að Óli var kominn og vildi fá þig með sér út á skauta. — Og þessi voða Ijóta klessa kom, þeg- ar þú einu sinni í vetur kastaðir snjó í aumingja höltu Siggu, sem alltaf er svo lasin og á svo bágt. Það var fjarska ljótt,“ sagði engillinn. Og þar voru rnargar klessur, sem höfðu komið, þegar Haraldur hafði skrökvað. Og hann blóðroðnaði og lofaði því hátíðlega með sjálfum sér að gera það aldrei framar. Nokkrar klessur höfðu komið, þegar Haraldur var í skólanum. Stundum fylgdist hann ekki með, þegar liinir drengirnir voru að lesa, þó að kennarinn hefði beðið hann þess. Stundum talaði liann við sessunaut sinn. — Og ein voða stór var þarna vegna þess, að hann hafði eitt sinn beðið kennarann að lofa sér út úr kennslustund, án þess að þurfa þess. Hún Var svo stór vegna þess, að það er ætíð Ijótt að skrökva að þeim, sem treysta þér og þykir vænt um þig.. Haraldur var farinn að gráta. Þá sagði engillinn: „Hér eru líka nokkrar stjörnur, senr þú átt.“ Og Haraldur sá einstaka blað með yndislega fallegum stjörnum. Og engillinn hélt áfram: „Þessa fallegu stjörnu fékkstu, þegar þú varst allan daginn heima hjá mömm þinni og hjálpaðir henni meðan hún \'ar veik. — Og þessa, þegar þú varst allan daginn iðinn og eftirtektarsamur í skólanum. Og þessa fékkstu líka í skólanum, þegar þú hrintir ekki aftur á gang- inum, þegar þér var hrundið, held- ur stóðst kyrr í þinni röð og lézt sem ekkert væri. Og þessa fallegu stjörnu fékkstu, þegar þú ókst kolunum heim fyrir Guðrúnu gömlu í kjallaranum, þegar hún datt með kolapokann og nreiddi sig í fætinum. Þá tókst þú pokann hennar á sleðann þinn, en hinir drengirnir hlógu bara að henni. — Og nranstu, þegar þið Svenni voruð að leika ykkur og Svenni týndi vettlingunum sínum. Þið leituðum báðir og gátuð ekki fundið þá. Svenni litli hágrét og sagði, að mamma sín yrði reið. Þá fórst þú Iieinr nreð lronunr og baðst mönrnru Irans að fyrirgefa lronunr, og þegar lrún sagðist ekki geta keypt aðra vettlinga handa Svenna, þá kenndir þú svo í brjósti unr þau bæði, að þú hljópst lreim og baðst mönrnru þína að lofa þér að gefa þeirn alla peningana (14 kr\), senr þér voru gefnir á afmælinu þínu. Þá var ég lrreykinn af þér,“ sagði litli, fallegi engillinn. Og þá fékkstu þessa fallegu stjörnu í bók- ina þína. „Konru nokkrar klessur á jólun- unr?“ spurði Haraldur nreð hálfum lmga. „Það var nú lítið,“ sagði eng- illinn. „Það eru nú allir svo góðir og glaðir um jólin. Þessi konr nú

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.