Vorið - 01.03.1946, Side 20
18
V O R I Ð
samt,“ sagði hann, og sýndi honum
eina. „Hún er vegna þess, að þú
varst óánægður með bílinn, sem
pabbi þinn gaf þér, af því að Siggi
á loftinu fékk enn fallegri bíl. Það
er ljótt að öfunda. Guð verður allt-
af hryggur, þegar börn eru óánægð
með það, sem þau hafa, og öfunda
aðra.“ „Ég skal reyna að muna
það,“ sagði Haraldur auðmjúkur.
„Pabbi var líka hryggur yfir því, að
ég var ekki ánægður með bílinn."
„Nú er síðasti dagur ársins," sagði
engillinn. „Á morgun byrjar nýtt
ár. Þá gefur Guð þér nýja bók, og
í liana kemur allt, sem þú gerir á
því ári. Það vildi ég, að þú gætir
haft hana fallegri en þessi er.“ „Það
skal ég reyna,“ sagði Haraldur, „og
ég skal biðja Jesú að hjálpa mér.
Ó, hve það væri gaman að eiga hjá
Guði blettlausa bók með skínandi
stjörnum." „Reyndu það,“ sagði
litli, fallegi engillinn liiminglaður
um leið og hann setti bókina aftur
á sinn stað.
í sama bili vaknaði Haraldur í
rúminu sínu. Það var kominn bjart-
ur dagur, nýtt ár, og Haraldur átti
nú nýja bók hjá Guði. Því gleymdi
hann aldrei og varð framúrskarandi
góður drengur upp frá þessu.
Kennarinn: „Hvernig er hægt að vita,
hvort eitthvað er rétt eða rangt?“
Óli: „Jú, það er auðvelt. Ef eitthvað
er skemmtilegt, er það alltaf rangt.“
KRISTJÁN TR. JÓHANNSSON:
Leysing
Blærinn strýkur blítt um vanga
minn,
og brosir sólin heit og logaskær.
í æðum mínum ólga blóð ég finn,
senr ekki fann ég nokkuð til í gær.
Snjórinn bráðnar, brunar mórauð
á,
brýtur skarir kát með dimmum
söng.
Yfir landi líða regnský grá.
Lifnar allt á ný í fjallaþröng.
Seinna spretta blómin björt á.fold,
byggja fuglár hreiður sín í ró.
og frjómögn þörf á ástkær ísafold
og allir fá að strita og vinna nóg.
Minn hugur fyllist svásum söng
á ný,
og svartir skuggar víkja liægt á
braut.
Mér finnst ég aftur verða frjáls og
frí,
er fjötur myrkurs vorsins geisli
braut.