Vorið - 01.03.1946, Blaðsíða 22

Vorið - 01.03.1946, Blaðsíða 22
20 VORIÐ og þegar ég komst heim að hús- veggnum, fór ég að selja upp. Ég varð ni'i svo aumur og mátt- laus, að ég varð að skríða á höndum og fótum heim að dyrunum. Þá kom mamma út og sá, hve aumur ég var. „Guð hjálpi mér, hvers vegna ertu svona fölur og veikur, elskan mín?“ sagði hún. „Ég borðaði ber,“ stundi ég tipp, hálfskælandi. Mainma tók mig nú í fangið og bar mig inn í legubekk. Þá fór ég að kúgast og selja upp. Út úr mér sló köldum svita og mér leið voðalega illa. Mér fannst Iielzt eins og ég hefði verið hengd- ur upp á fótunum, og öll innyflin þrengdust upp í höfuðið á mér. Aldrei hefur mér liðið svo illa á ævi minni, hvorki fyrr né síðar. Nú greip mig líka feikna hræðsla um það, að ég hefði borðað eitur, og væri nú að deyja. Að síðustu sofn- aði ég svo út frá þessurn harmkvæl- um, þeim mestu, sem ég hef liðið um dagana. Þegar ég vaknaði morguninn eft- ir, fann ég til verkjar í höfðinu, Iiafði suðu fyrir eyrunum og var mjög máttfarinn. Mér leið hálf illa og var í rúminu þennan dag. En nú fékk ég að vita, hvernig í öllu lá. Flöskunni með berjunum náði félagi minn úr skáp, sem amma hans átti. Berin voru einiber, og á þeim liafði verið brennivín, og voru því berin þrungin áfengi og talsvert brennivín með þeim í flösk- unni. Við höfðum sem sé orðið drukkn- ir af því að borða þau. Þetta er í fyrsta og síðasta sinni, sem ég hef orðið drukkinn. Oft hefur mér staðið áfengi til boða þau 50 ár, sem liðin eru frá þessunt atburði. En líkamlegu og andlegu þjáningarnar, sem ég Jroldi sól- bjartan sumardag fyrir 50 árum, hafa jafnan verið mér svo minnis- stæðar, að ég hef skömm á áfengi, og mun aldrei bragða Jrað framar, hve gamall, sein ég verð. Gamall skólastjóri. RÁÐNINGAR á Jirautum í síðasta hefti. Orðþra'ut H áma. E dik. G ala. R auð. I lur. Fuglanöfn. Næturgali, Lævirki, Svala, Kráka, Hrafn, Dúfa, Fálki, Smirill, Örii, Kondór, Rjúpa, Stelkur, Lóa, Tjaldur, Hegri.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.