Vorið - 01.12.1950, Page 8
126
VORID
dvala. Andardrátturinn-er snöggur
og þungur, og stórir svitadropar
glitia á fíngerðuhörundinu.Grann-
ar og máttvana hendur hreyfast í
sífellu. Þær eru eins og vænglama
fuglar; sem finna hvergi ró.
Ung stúlka í ljcsum hjúkrunar-
búningi stendur við gluggann og
starir út í næturmyrkrið. Hún er
döpur í bragði, eins og þungir
skuggar hvíli yfir sál hennar. Eng-
inn veit til hlítar þá harmasögu,
sem varð þess valdandi, að hún
kaus sér þetta starf. Hún þráir
gleymsku, en fær þó ekki gleymt.
Hún þráir fórn, en finnur ekki
það, sem hún leitar að. Og þó —
stundum virðist nokkur fróun í
stritinu. Einkum í þágu veikra og
vanmátta.
Unga stúlkan snýr sér mjúklega
að sjúklingnum. Hugur hennar er
fullur samúðar og mildi. Hún þerr-
ar svitann af brennheitu enni kon-
unnar. Síðan dælir hún lyfi í grann-
an og sjúklegan handlegg hennar
og býr hana á allan liátt undir síð-
ustu baráttuna. Hún er örugg, en
varfærin í hreyfingum, eins og sá,
er kann og skilur hlutverk sitt.
Allt er kyrrt og hljótt. Unga
stúlkan sezt við gluggann og styð-
ur hönd undir kinn. Hún lokar
augunum, — og örfáar mínútur
gleymir hún stund og stað.
Allt í einu glaðvaknar hún og lít-
ur í kringum sig. Henni virðist
sjúklingurinn anda rólegar, líkt og
í værum svefni.
Það er eins og stofan hafi breytt
um svip.
Djúpur og mildur friður vefst
um sál hinnar einmana vökukonu.
Skyndilega hefur tómleikinn þok-
azt burt úr hug liennar. Hún finn-
ur ekki lengur hina þjakandi van-
máttarkennd. Hugur hennar er
gagntekinn af nýjurn þrótti og
birtu.
Vökukonan lýtur niður að sjúkl-
ingnum, sem virðist sofa djúpum,
eðlilegum svefni.
Skyldi batinn vera að korna,
svona snöggt og óvænt?
Það væri kraftaverk, — einkenni-
legt, dásamlegt kraftaverk. Og unga
stúlkan lofar Guð í hljóði.
Sjálfsagt á þessi veikbyggða
sveitakona einhverja nána ástvini,
sem þrá hana og biðja fyrir henni.
Unga stúlkan er rík af samúð
og góðvilja. Hún þekkir sorg og
söknuð, þótt hún sé ung að árum.
Oft hefur henni fundizt lífið svo
ótrúlega miskunnarlaust og líkast
því, sem hending ein réði úrslit-
um.
En á þessari nóttu vaknar ný og
bjartari lífstrú í vitund hennar, án
þess að hún geri sér fulla grein fyr-
ir hvað því veldur.
Um morguninn er lnin óvenju-
lega hress og glöð. Ef til vill er það
vegna sjúklingsins, sem nú er að
vakna af værum blundi, og hefur,