Vorið - 01.12.1950, Blaðsíða 39

Vorið - 01.12.1950, Blaðsíða 39
VORIÐ 157 nánd. Addi var farinn að hlakka til jólanna, þó að ekki yrði stórt jóla- tré né mikið skraut heirna hjá hon- um eins og á heimili Bjössa. En nú halði Bjössi sagt honum, að hann hefði heyrt, að pabbi hans og mamma hefðu verið að tala um að bjóða foreldrum Adda heim á jól- unum. Það kom að því, sem Bjössi sagði. Nú var komið aðfangadagskvöld. Addi og foreldrar lians voru á leið heim til Bjössa. Nú voru þau kom- in heim að húsinu. I forstofunni tók þjónustustúlka við yíirhöfnum þeirra og vísaði þeim inn. Nú var setzt að borðum. Að loknum snæð- ingi var gengið kringum jólatré og sungnir jólasálmar. Því næst voru jólagjafirnar teknar upp. Allir fengu eitthvað fallegt. Addi fékk margar góðar gjafir, en sú gjöf, sem honum þótti vænst um, var gullúr frá foreldrum Bjössa, en það gáfu þau honum, af því að hann hafði bjargað syni þeirra úr vökinni. Ingibjörg G. Matthiasdóttir (11 ára), Vík, Mýrdal. SAMTAL í 2. hefti Vorsins var birt mynd af tveimur börnum, sem voru að tala saman. Óskað var eftir, að les- endur Vorsins byggju til samtal um þessa mynd. Hér kemur eitt þeirra: „Jæja, nú erum við komin í sunnudagafötin okkar. Hvað eig- um við nú að leika okkur?“ „Við skulum fara með Frúna í Hamborg. Kanntu liana?" „Já, ein stóra stelpan kenndi mér liana.“ „Byrjaðu þá. Þú spyr, en ég svara.“ „Hvað gerðirðu við peningana, sem Frúin í Hamborg gaf þér í gær?“ „Ég keypti mér bíl.“ „Hvernig var hann á litinn?“ „Svartur með rauðum hjólum.“ „Hæ, nú vann ég. Þú máttir ekki segja svart, hvítt, já eða nei.“ „Jæja, við byrjum aftur, og nú skal ég spyrja." „Jæja, þá.“ „Hvað gerðirðu við peningana, sem Frúin í Hamborg gaf þér í morg-----nei, í gær?“ „Ég keypti mér kjól.“ „Var hann svartur?" „Nei, nei — liann var rauður." „Nú vann ég, þú sagðir nei.“ „Jæja, þá erurn við jöfn. Það er gott.“ Lisabett Scott (14 ára). RÚNINGUR „Æ! Æ! Það er nú meira, livað kindur geta verið óþægar. Ég held í eina hornið hennar Golsu — það var nefnilega brotið af henni ann- að hornið —. Hana — þá sparkaði

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.