Vorið - 01.12.1950, Blaðsíða 22

Vorið - 01.12.1950, Blaðsíða 22
Í40 V O R I Ð þetta?“ hvíslaði hann að konunni, og leit ógnancli á aðkomufólkið. „Jósef og María með barnið Jes-- ús. Ég hef lofað þeim að vera vegna barnsins okkar,“ svaraði konan lágt. — „Þau eru á flótta, af því að líf barnsins þeirra er í liættu, eins og líf barnsins okkar,“ bætti hún við og andvarpaði. Ræninginn gekk til Jósefs. — „Friður sé með þér, konunni og barninu,” sagði hann. „Ég skal taka asnann, en þið skuluð liita ykkur.“ Hann tók asnann og teymdi hann út í horn. „Aumingja drengurinn minn er veikur,“ sagði ræningjakonan. — „Ég hef sparað vatnið til að geta baðað hann. Það er þarna í fatinu við hliðina á þér, María. Nú skalt þú fyrst þvo drengnum þínum upp úr því — hann er minni og heil- brigður — svo get ég baðað dreng- inn minn á eftir. Þá skal ég vita, hvort ég finn ekki eitthvað handa ykkur til að borða.“ María Jrakkaði fyrir á sinn venju- lega, hljóðláta hátt, afklæddi Jesú og jjvoði af honum eyðimerkur- sandinn. Hann brosti glaður og ánægður, jregar hún Jrerraði hann. Þegar hann var reiðubúinn til að fara að sofa, lagði hún hann í arma Jósefs. Augu barnsins ljómuðu eins ög stjörnur, og hann rétti út litlu hendurnar, eins og hann vildi faðma allan lreiminn. „Nú skal ég hjálpa þér,“ sagði María við ræningjakonuna. Svo hjálpuðust jrær að við að baða veika barnið úr heita vatninu. Það leit út fyrir að veiki dreng- urinn væri mjög langt leiddur, en þá gerist það undrunarverða — —. Hann fór að anda jafnara og dýpra. — Dálítið andvarp kom yfir Jrurrar varirnar. Svo leit hann upp og reyndi að lyfta höndunum. „Mamma!" hvíslaði hann. „Mamma!“ Roði kom aftur í kinnar hans og varir. Hann brosir, já, hann brosir! „Pabbi!“ sagði barnið. „Elsku pabbi!“ Jósef kom til jreirra nreð Jesú- bainið á handleggnum. Þá leit María á drenginn sinn. „Er barninu að batna? Skyldi Jrað fá að lifa?“ Sonur ræningjans hafði læknast. Þau lögðust öll til svefns með frið í hjarta ,eftir að ræninginn hafði skipt brauði sínu, döðlum og vatni milli Jreirra allra — líka flóttamannanna — Jósefs, Maríu og Jesúbarnsins, sem flýðu undan reiði Heródesar. Og sagnirnar segja, að eftir þetta hafi ræninginn látið af öllum rán- um, en tekið fyrir heiðarlega vinnu. En ræningjakonan hafi geymt vatn- ið, sem Jesús Kristur var baðaður úr og gefið veikum af því til að draga úr þjáningum þeirra og gefa þeim heilbrigði. (E. S. þýddi).

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.