Vorið - 01.12.1950, Blaðsíða 30

Vorið - 01.12.1950, Blaðsíða 30
148 V O R 1 Ð meðfram vagninum, til þess að hlífa hestinum sem mest. Þetta sumar ferðuðust þeir um miðhluta Jótlands. Sveitafólkið var ekki vant við miklar skemmtanir, og tók því með þökkum, og meira að segja með miklum fögnuði, sýn- ingum Brúnós. Loks komu þeir til Viborgar, en þegar þeir nálguðust borgina, rann það allt í einu upp fyrir Brúnó, að hann hafði komið þarna áður, sér- staklega kannaðist hann vel við kirkjuna með ferkantaða turninum. Og þegar hann ók fram lijá kirkju- garðinum, varð honum það á svip- stundu Ijóst, að þetta var einmitt staðurinn, þar sem Eyvindur átti heima. Þegar hann hafði hjálpað Falk til að ganga frá vagninum og koma hestinum fyrir, sagði hann með ótta og kvíða í röddinni: ,,Falk, hérna á Eyvindur heima,“ og hann benti á rauða þakið, sem sást á milli trjánna. „Heldur þú að ungfrú Jen- sen muni senda mig á ,,hælið“, ef hún veit af mér hér?“ „Nei, það kemur ekki til nokk- urra mála. Þú segir bara, ef þú ert spurður að því, að þú sért í minni þjónustu, og þá verður það látið gott heita.“ „Já, en ég er ekki fermdur — leik- stjórinn sagði alltaf, að þess þyrfti ekki. Er það satt?“ „Já, það er ekki alveg nauðsyn- legt hér í litla, frjálsa landinu okk- ar. En annars skalt þú verða ferrnd- ur seinna. Við getum spjallað sam- an um trúarbrögðin, og þegar þú ert búinn að lesa dálítið í viðbót, skal öllu verða komið í lag. En nú held ég, að þú ættir að heilsa upp á Eyvind og þakka lionum fyrir síð- ast. Ég ltugsa, að honum þyki vænt um það. En farðu í beztu fötin þín, svo að hann sjái, að þú ert ekki lengur neinn flækingsræfill. Og ef þú hittir ungfrú Jensen, skaltu vera alúðlegur við hana, því að við eig- um að sýna öllu þessu skapstirða fólki nærgætni og umburðarlyndi. Það hefur sínar byrðar að bera. Annað hvort er það í eðli sínu svona skapi farið, og getur þá ekki að þessu gert, eða að það hefur fengið illt uppeldi, og það er ekki heldur því að kenna. En um þetta skulurn við nú tala meira síðar, drengur minn. Þegar þú ert búinn að borða, skaltu finna Eyvind.“ Brúnó klæddi sig nú í sparifötin sín, lét á sig brúnu skóna, sem Falk hafði gefið honum í jólagjöf, og hélt síðan af stað í gegnum þorpið. Hann gekk fram hjá kirkjugarðin- um, þar sem hann lá og beið nótt- ina, sem hann strauk. Hann sá storkshreiðrið á þakinu á Litla- Lundi undir eins og hann kom út úr þorpinu. Og nú sá hann menn- ina heima á bænum. Hann þekkti þá alla, er liann gekk lreim tröðina. (Framhald).

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.