Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 3

Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 3
JÚLÍ—SEPTEMBER 1956 3. HEFTI VORIÐ 22. ÁRGANGUR Pegar ,, OLDUNNI" var bjargah Óttar hafði mikið yndi af að fást við alls konar vélar. Og þótt hann væri aðeins 13 ára gamall, vissi liann þó meira um alls konar vélar og tæknilega hluti en flestir aðrir. Hann gat larið með vélbát frænda síns, engu síður en liann sjálfur, og nú dreymdi hann um að verða svo gamall, að hann mætti aka bíl. Bezti vinur Óttars liét Leifur. Þessir tveir drengir voru jafnaldrar, en áhugamál þeirra voru þó ;ikaf- lega ólík. Leifur vildi helzt alltaf liggja í bókum, og hafði einnig mjög gaman af að reikna. Hann liafði engan áhuga fyrir vélum og öðru álíka. Þannig bættu þeir félag- arnir hvor annan upp. Ef eitthvað var, sem annar þeirra kunni ekki skil á, gat hinn venjulega bætt úr því. Þeir vinirnir áttu heima út við liafið, á stað þeim, er nefnist Grá- vík. Feður þeirra voru fiskimenn, eins og afar þeirra og langafar höfðu verið á sínum tíma, og höfðu lifað nær eingöngu af þeirri atvinnu. Hér hafði allt gengið svo vel og árekstralaust, þangað til þeir komu hingað og settust hér að, þeir Sebastian Karlsson og Kristófer Abelsson. Það vissi eiginlega eng- inn livaðan þessir náungar komu, og þeir voru ekki að hafa fyrir því að segja frá því. En nú gerist það, að ýmsir hlutir fara að hverfa á dularfullan liátt. En það hafði aldrei kornið fyrir áður í Grávík. Eina nóttina liurfu kannski veiðarfæri, eða síld úr tunnu, eða þá eitthvað annað. Eng- inn vissi, hver var valdur að þessu hvarfi, en einhvern veginn var það grunur margra að þeir Sebastian og Kristófer myndu standa þarna á bak við. Og svo þegar ])að vitnaðist einn morgun að netinu liefði verið stolið frá honum Elíasi gamla, þótti þeim óttari og Leif nóg komið, og þeir

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.