Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 30

Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 30
108 V O R I Ð ýmislegt skemmtilegt við, — þá bjó alltaf þessi sama hugsun innst í sál hennar: „Mamma er hrygg. Ég veit ekki af hverju. Hún vill ekki láta mig vita það. Ég ætla ekki að reyna að komast eftir því. — En hún er hrygg.“ Þetta hljómaði eins og sí- felldur söngur í sál hennar, söngur, sem ómögulegt var að þagga. Alltaf voru börnin jafn hugulsöm við rússneska manninn. Allir þingmennimir, ritstjórarn- ir og skrifararnir voru búnir að svara bréfum mömmu. Þeir gerðu það mjög kurteislega, en enginn þeirra gat gefið nokkrar upplýsing- ar um verustað konu og barna herra Szezleparskys, en svo Iiét rússneski maðurinn. Bobbí braut stöðugt heilann um, hvernig hún ætti að fara að því að hjálpa Rússanum til að finna ástvini sína. En henni datt ekki neitt ráð í hug. Henni þótti vænt urn, að hann dvaldi hjá þeinr, því að mamma hafði ánægju af því. Hún vissi það vel, að mamma gat naumast afborið það að láta liann fá fötin af pabba, og þó gerði hún það. „Mamma vill ekki aðeins vera góð við okkur, hún vill vera öllum góð,“ hugsaði Bobbí með sjállri sér. Einn morgun kom pósturinn með bréf. Það var skrifað utan á það til Péturs, Róbertu og Fríðu. Þau urðu mjög forvitin að vita frá hverjum þetta væri, því að þau fengu ekki oft bréf. Þau opnuðu það því í flýti og lásu eftirfarandi: „Kæru börn! Okkur langar til að gefa ykkur ofurlitla gjöf til að minnast snar- ræðis ykkar og hugrekkis, daginn sem þið stöðvuðuð járnbrautarlest- ina og komuð með því í veg fyrir hræðilegt járnbrautarslys. Ykkur verður afhent gjöfin á stöðinni kl. 3, þann 30. þ. m„ ef sá staður og tími er hentugur fyrir ykkur.“ Jabez Inglewood, ritari j árnbrau tarfélagsi n s. Aldrei á ævi sinni liöfðu börnin lifað stærra augnablik. Þau þutu upp til mömmu, sem einnig varð glöð, og jók það enn meir á gleði barnanna. „Ég ætla að þvo mússu línskjólana ykkar undir eins," sagði manna. „Þið verðið að vera vel til fara við þetta tækifæri." Framhald. Þriðji bekkur í sk(>la eiuuni átti ao skrifa ritgerð um „Hjólhestinn hans pabba“. Ritgerðin átti að vera 100 orð. Tíu ára stúlka skrifaði eftirfarandi stíl: Dag nokkurn ætlaði pabbi að hjóla nokkurn spöl til að reka eitthvert erindi. Nokkur hundruð metra frá heimili hans þurfti liann að fara yfir járnbrautarteina, en í sama bili kom lestin. Pabbi komst til allrar hamingju klakklaust yfir tein- ana, en reiðhjólið gjöreyðilagðist. Þetta eru 42 orð, en liin 58 sagði hann, þegar liann bar hjólið sitt heim mölbrotið.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.